Vilja að Gaukurinn ljómi 16. desember 2006 17:30 Hljómsveitin Sóldögg ætlar að spila á Gauki á Stöng í kvöld.
Hljómsveitin Sóldögg ætlar að spila á Gauki á Stöng í kvöld. Þetta verða fyrstu tónleikar sveitarinnar hér á landi í langan tíma og hugsanlega þeir síðustu. „Hljómsveit sem er hætt sem er að fara að spila á stað sem er lokaður,“ segir Bergsveinn Árilíus, söngvari Sóldaggar og hlær. „Við fórum í þriggja daga tónleikaferðalag til Hollands í september og þá kviknaði mikill kærleikur innanbúðar. Við ákváðum að prófa að taka eitt gigg hérna heima og sjá hvað gerist. Ef það gerist ekkert ætlum við að hætta þessari vitleysu en ef eitthvað gerist erum við tilbúnir að koma með plötu og vinna í okkar málum,“ segir Bergsveinn, sem hefur margoft spilað með Sóldögg á Gauknum.„Gauksrottur“ láti sjá sigbergsveinn árilíus Söngvari Sóldaggar vill að „Gauksrotturnar“ láti sjá sig í kvöld.Hann vonast til að gamlar og nýjar „Gauksrottur“ láti sjá sig á tónleikunum. „Þetta kvöld viljum við að Gaukurinn ljómi eins og hann gerði hérna áður fyrr. Ég er búinn að fá ansi mörg skemmtileg símtöl frá fólki sem ég hef ekki heyrt í lengi sem stundaði staðinn og er að spá í að fara að pússa lakkskóna.“ Hörkuvinna í HollandiÍ Hollandi spilaði Sóldögg í háskólum og á tónlistarhátíðinni Freezeland Pop Festival ásamt um þrjátíu öðrum hljómsveitum og gekk það prýðilega. „Þetta var mjög skemmtilegt. Nú komst maður að því að þetta er hörkuvinna að fara í svona ferðalag en við kynntumst fullt af fólki. Við munum vonandi spila á stærra festivali á næsta ári,“ segir Bergsveinn, sem var að spila í fyrsta sinn fyrir útlendinga. „Við höfum oft spilað úti fyrir Íslendinga en þarna vorum við að splila fyrir Hollendinga og fleiri útlendinga. Við sungum allt okkar efni á íslensku og okkur var mjög vel tekið.“ Mikilvæg reynslaBergsveinn segir að reynslan úr ballbransanum hérna heima hafi komið Sóldögg að góðum notum í Hollandi og nefnir Magna sem gott dæmi um þessa mikilvægu reynslu, sem hann nýtti sér svo eftirminnilega í Rock Star.
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Menning Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni „Hún er komin til að vera“ Tónlist Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira