Samfylkingin þarf endurnýjun 6. september 2005 00:01 Guðmundur Árni Stefánsson gerir upp feril sinn í pólitík í Morgunblaðsviðtali við gamlan félaga sinn úr blaðamennsku, Árna Þórarinsson. Ég vann reyndar stutta hríð með þeim báðum á Helgarpóstinum, þá var Árni ritstjóri en Guðmundur skrifaði hraðsoðna pistla um pólitík í ógurlegum barningi við skilafrestinn. Mig minnir að stundum hafi þurft að nota eitt leyndardómsfyllsta tæki blaðamannsins við greinar Guðmundar - sjálfan dálkastrekkjarann. Nú er Guðmundur orðinn diplómati og fínn maður. Hann fer í eitt viðhafnarviðtal áður en hann hverfur inn í þagnarbindindi sendiherrans. --- --- --- En í þetta sinn leyfir hann sér að senda skot í ýmsar áttir, ekki síst til félaga sinna í Samfylkingunni. Guðmundur gagnrýnir Össur og Ingibjörgu fyrir að hafa ekki tekist að koma flokknum í stjórn í síðustu kosningum, segir að það hafi verið mikil vonbrigði. Össur fær ádrepu fyrir að hafa borið víurnar í Halldór Ásgrímsson strax morguninn eftir kosningar, Ingibjörg fyrir að hafa skemmt fyrir möguleikum á samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfur segir Guðmundur að hann hefði gjarnan viljað fara í stjórn með Sjálfstæðismönnum. Og jú, það eru áreiðanlega margir á þeirri skoðun að slík ríkisstjórn hefði verið fyllilega tímabær. En hvers vegna sagði Guðmundur þetta ekki á sínum tíma? Hefði það ekki verið miklu hreinlegra í staðinn fyrir að þessi áhrifamikli stjórnmálamaður, foringi í sínu kjördæmi, væri að pukrast með þessa skoðun sína en lauma henni svo út um það bil að hann er að hætta í pólitík? Trúði hann því kannski ekki að þetta myndi fá hljómgrunn hjá kjósendum Samfylkingarinnar? --- --- --- Annars er þetta ágætt dæmi um hugsunarháttinn sem er ríkjandi í kringum kosningar á Íslandi. Almenningur má kjósa, en það er einkamál stjórnmálamanna hvernig farið er með kosningaúrslitin - hvernig þau eru túlkuð morguninn eftir kosningar. --- --- --- Samfylkingin hefði þurft að komast í þá stöðu að leiða ríkisstjórn eftir síðustu kosningar - tilboð um að setjast í stjórn undir forystu helmingi minni Framsóknarflokks var að sönnu veikleikamerki. Hins vegar hræða sporin. Alþýðuflokkurinn var við það að þurrkast út í tvígang eftir stjórnarsamstarf við Sjálfstæðismenn og aldrei hefur fylgi Framsóknarflokksins verið minna en nú, þótt hann eigi sjálfan forsætisráðherrann í samstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Svo er náttúrlega spurningin um kjósendur Samfylkingarinnar. Hver er hugur þeirra gagnvart samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn? Er þeim ekki tamara að líta á flokkinn sem erkiandstæðinginn? --- --- --- Kosning nýs formanns hefur ekki skilað sér í skoðanakönnunum fyrir Samfylkinguna. Kannski skiptir það ekki öllu máli - það er enn sumar, ekkert að gerast í pólitíkinni. Hins vegar virðist ljóst að formaðurinn nýi þarf að fara í mikla tiltekt. Sjálf hefur Ingibjörg Sólrún langt í frá endurheimt traustið sem hún hafði áður en hún fór í hið vanhugsaða þingframboð - það er vafamál hvort hún gerir það nokkurn tíma. Nýr varaformaður flokksins, Ágúst Ólafur Ágústsson, er veiklaður eftir ásakanir um svindl á landsfundinum í vor. Unnvörpum eru líka að hverfa á brott sterkir þingmenn: Guðmundur Árni, Bryndís Hlöðversdóttir og kannski lætur Össur slag standa og fer í borgarstjóraframboð. Þetta er að veikja flokkinn mikið. Samfylkinguna sárvantar öfluga þingmenn - flokkurinn hefur til dæmis varla neinn innan sinna raða sem getur fjallað með trúverðugum hætti um efnahagsmál. Það er mikill veikleiki á þeim tímum sem við lifum á. Varaþingmennirnir sem hafa fyllt skörðin virka fjarska litlausir. Maður er í raun ekki enn farinn að vita hvaða menn þetta eru - gerðu þeir nokkurn tíma ráð fyrir að enda á þingi? Margir af gömlu þingmönnunum virka eins og tími þeirra sé kominn, fólk eins og Rannveig Guðmundsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Jóhann Ársælsson og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Margrét Frímannsdóttir hefur setið á þingi fyrir ýmsa flokka og hlýtur að fara að spyrja sig hversu mikið lengur það kærir sig um að lafa í stjórnarandstöðu? En líklega stendur þessu fólki ekki sendiherraembætti til boða eins og Guðmundi Árna, útgönguleiðin er varla eins greið? --- --- --- Þegar við þetta bætist að það er nokkuð óljóst fyrir hvað Samfylkingin stendur - gagnvart einkavæðingu, miklum uppgangi auðvaldsins, jöfnuði í samfélaginu, skattamálum, utanríkismálum - sér maður ekki betur en að flokkurinn þurfi að fara í stórfellda endurnýjun. Það er eiginlega óhugsandi að nýi formaðurinn beiti sér ekki fyrir því. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pistlar Silfur Egils Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun