Fékk hnakk með slaufum í jólagjöf 2. mars 2005 00:01
Elsa Karen Þorvaldsdóttir Sæmundsen er fjögurra ára fjörug stelpa sem alltaf er að læra eitthvað nýtt. Hún kann til dæmis að reima skóna sína sjálf og binda slaufu. En við hittum hana í hesthúsinu með pabba. Elsa Karen er greinilega vön að umgangast hesta og henni þykir lyktin af þeim góð. Hún er meira að segja svo rík að eiga sinn eigin hest sem heitir Vængur. "Hann er fjögurra ára eins og ég," segir hún brosandi og lætur svo blaðamann geta upp á hvað hún fékk í jólagjöf frá pabba og mömmu en hann gatar á prófinu. "Ég fékk hnakk og hann var með slaufum," upplýsir hún ánægjuleg. Þegar hún er beðin að sýna Væng vandast málið því hann er ekki heima. "Vængur er í skóla uppi í sveit. Það er verið að temja hann svo ég geti verið á honum," útskýrir Elsa Karen og hlakkar til að fá þennan vin sinn til baka. Sjálf er hún líka í skóla á daginn. Það er leikskóli sem heitir Rauðaborg. Á laugardögum er hún í fríi en þá fer hún að æfa ballett hjá Sigríði Ármanns. "Svo borða ég líka nammi á laugardögum," segir hún grallaraleg. En hvað skyldi henni þykja skemmtilegast að gera. "Leika mér með barbí og fara á hestbak," segir hún og kallar í pabba sinn og biður hann að lyfta sér á bak. Situr fyrst hin keikasta og hallar sér svo makindalega fram á makkann til að finna góðu lyktina af faxinu.
Tilveran Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira