Margra daga bolluhátíð 6. febrúar 2005 00:01
Bolludagurinn er á morgun, en bolluát er ekki bundið við þann eina dag, heldur er þetta orðið margra daga hátíð. Það var mikil örtröð var í Bakrameistaranum í Suðurveri í dag og flestir ef ekki allir að kaupa bollur. En þrátt fyrir að bolludagurinn sjálfur sé ekki fyrr en á morgun hefur mikið verið að gera í bolluframleiðslunni að undanförnu. Óttar Sveinsson bakarameistari segir að framleiðsla í Bakarameistaranum hefjist rúmri viku fyrir bolludag og að viðskiptavinum sé komið á bragðið einni helgi fyrir bolludag. Á fimmtudeginum hefjist sala af fullum krafti og hámarkinu sé náð á sjálfan bolludaginn.Aðspurður hvort þjóðin sé alltaf jafnsólgin í hnossgætið segir Óttar að salan hafi aukist ár frá ári og viðtökurnar séu mjög góðar. Áður fyrr voru þetta bara bollur með súkkulaði eða flórsykri en nú eru tegundirnar orðnar fjölmargar og sumar hverjar hreinasta listaverk. Allt er unnið í höndunum og að sögn Óttars þarf að tvöfalda mannskapinn þessa viku og er lítil hvíld enda er mikið framleitt. Bakarameistarinn framleiði 40 þúsund bollur en stígandi hafi verið í bollusölu undanfarin ár.
Tilveran Mest lesið Forsetahjónin létu sig ekki vanta Lífið Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Þorsteinn og Rós orðin hjón Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Fleiri fréttir Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira