Vanda skal tekjuáætlunina 13. október 2005 15:20 "
Þegar sótt er um námslán verður að vanda tekjuáætlunina eins og hægt er. Helsta ástæða þess að mismunur er á milli lánsins sem greitt er út og áætlunarinnar í upphafi skólaannar er sá að tekjur eru vanáætlaðar og því er lánið skert. Það er því nauðsynlegt að setja allar mögulegar tekjur inn í áætlunina svo útgreitt lán í lok annar nái að greiða yfirdráttinn upp að fullu," segir Kristín Valtýsdóttir, þjónustufulltrúi hjá Landsbanka Íslands. "Ef einhverjar umframtekjur eru eftir í lok sumars er skynsamlegast að nota þær til framfærslu fram eftir skólaönninni og fresta töku yfirdráttarláns í nokkra mánuði. Þannig sparast greiðslur vegna vaxta af yfirdrætti og hægt er að ávaxta peningana sem LÍN greiðir,". segir Kristín og jafnframt að ef til þess komi að fólk þurfi að taka yfirdráttarlán mæli hún ekki með því að yfirdrátturinn sé hærri en sem nemur lánsloforðinu frá LÍN. "Best er að hækka yfirdráttarheimildina mánaðarlega, þá fæst yfirsýn yfir það hve miklu má eyða um hver mánaðamót, en yfirdráttarlán eru fyrst og fremst hugsuð til að brúa bilið," segir Kristín og telur hún það mikilvægt að huga að öllum kostnaðarliðum þegar fjármálin eru skipulögð. Fyrir utan bókakostnað þurfa námsmenn að gera ráð fyrir framfærslukostnaði og einnig hvort þeir hafi efni á að reka bíl. Rekstur á bíl er dýr og því skiptir máli að kanna verð á tryggingum og auðvitað spara eins og hægt er við bensínkaupin. "Það sparar tíma og peninga að hafa öll regluleg útgjöld í greiðsluþjónustu, en þá eru útgjöldin skuldfærð í hverjum mánuði. Þessi þjónusta hentar þeim sem hafa fáa reikninga. Þeir sem hafa fleiri fasta útgjaldaliði ættu frekar að vera í greiðsludreifingu, en þá er útgjöldum heimilisins dreift jafnt yfir árið og föst upphæð greitt mánaðarlega. Þannig er hægt að hafa góða yfirsýn yfir fjármálin," segir Kristín. Fyrir þá námsmenn sem kjósa að nota kreditkort vill Kristín benda á kreditkort með inneign. Með þessum kortum hafa námsmenn aðgang að öllum eiginleikum kreditkorts eins og slysa- og ferðatryggingum en skulda ekki neitt um mánaðamót. Velji námsmenn að fá sér hefðbundin kreditkort er mikilvægt að stilla heimildum í hóf og gera alltaf ráð fyrir að geta greitt reikninginn um næstu mánaðamót því fjölgreiðslur auka kostnað. "Það er mjög góð regla að setja niður áætlun fyrir mánuðinn til að sjá betur í hvað þú getur eytt og taka saman í lok mánaðar hvort áætlunin hafi staðist og hverju þurfi að breyta fyrir næsta mánuð," segir Kristín.
Nám Mest lesið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál Áslaug býður í partý Lífið Matt Brown er látinn Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Fleiri fréttir Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr Aðalsteinn Bergdal er látinn Jónmundur bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes „Þetta parísarhjól sökkar“ Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Sjá meira