Rússar herða tökin á samtökum 13. desember 2005 06:00 Almennt hafa menn gengið út frá því að kalda stríðinu sé lokið og að samskipti Rússa við vestrænar þjóðir séu í eðlilegum farvegi en svo virðist þó ekki vera ef marka má fréttir að undanförnu frá Moskvu og viðbrögð við þeim. Í lok vikunnar mun Dúman í Moskvu, rússneska þingið, greiða atkvæði um lagafrumvarp sem vakið hefur töluverða umræðu á Vesturlöndum. Frumvarpið hefur þegar farið í gegnum fyrstu umræðu í Dúmunni og var þá samþykkt með atkvæðum nær allra þingmanna. Það miðar að því að takmarka mjög athafnir og frelsi innlendra og erlendra samtaka þar í landi, einkum þó alþjóðasamtaka sem starfa víða um heim og Rússar telja að starfi mörg hver undir fölsku flaggi. Í grein hér í Fréttablaðinu á sunnudag sögðu tveir bandarískir sérfræðingar í málefnum Rússlands um frumvarpið: "Háttsettir rússneskir embættismenn hafa lýst sjálfstæðum samtökum sem "fimmta valdinu" í rússnesku samfélagi og jafnvel sem yfirvarpi fyrir erlendar njósnaþjónustur." Fyrst Rússar hafa á annað borð snúið sér í lýðræðisátt verða þeir að sætta sig við ýmsa utanaðkomandi gagnrýni, rétt eins og önnur ríki. Það er stöðugt verið að raða ríkjum eftir því hvernig gengur á ýmsum sviðum, hvernig ástandið sé í einstökum málaflokkum á mælikvarða alþjóðastofnana. Ef Rússar taka þátt í starfi þeirra verða þeir að taka mið af áliti sérfræðinga þeirra. Á tímum kalda stríðsins ráku stórveldin gífurlega umfangsmikla njósnastarfsemi og það er langt í frá að njósnastarfsemi sé hætt og á það við báða aðila. Í Rússlandi og ekki síður í Bandaríkjunum og reyndar flest öllum löndum er enn rekin umfangsmikil njósnastarfsemi og milljörðum króna varið til leyniþjónustustofnana þessara landa ár hvert. CIA-málið er gott dæmi um það. Í Rússlandi er því haldið fram að njósnir séu stundaðar í skjóli ýmissa alþjóðasamtaka sem reka þar starfsemi. Rússar halda því fram að þau vinni kerfisbundið að því að grafa undan rússnesku samfélagi og þess vegna sé verið að setja fastar reglur um starfsemi þeirra. Sem dæmi um hve Rússum er mikil alvara í þessu máli var viðtal við yfirmann leyniþjónustunnar þar í landi um frumvarpið þar sem hann lýsti þörfinni á því. Þá sendi Pútín Rússlandsforseti frá sér yfirlýsingu um það fyrir helgi til að undirstrika mikilvægi málsins. Í vestrænum fjölmiðlum er því haldið fram að stjórnvöld í Moskvu óttist að það sama gerist þar og í mörgum nágrannaríkjunum eins og Úkraínu, svo dæmi sé nefnt, þar sem fólkið tók völdin ef svo má að orði komast. Þeir óttast sem sagt appelsínugula byltingu í Rússlandi. Fyrst Rússar hafa á annað borð snúið sér í lýðræðisátt verða þeir að sætta sig við ýmsa utanaðkomandi gagnrýni, rétt eins og önnur ríki. Það er stöðugt verið að raða ríkjum eftir því hvernig gengur á ýmsum sviðum, hvernig ástandið er í einstökum málaflokkum á mælikvarða alþjóðastofnana. Ef Rússar taka þátt í starfinu verða þeir að taka mið af áliti sérfræðinga þeirra. Ef þeir hins vegar hafa staðfestan grun um að erlend ríki séu að grafa undan þjóðfélaginu í skjóli alþjóðastofnana hafa þeir hingað til haft lag á því að losa sig við viðkomandi úr landi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Kári Jónasson Skoðanir Mest lesið Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun Að mása sig hása til að tefja Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda Ingibjörg Isaksen Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Sparnaðarráð fyrir ferðalagið Svandís Edda Jónudóttir Skoðun Samráðsdagar á Kjalarnesi Ævar Harðarson Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun Að mása eða fara í golf Jón Pétur Zimsen Skoðun Leiðréttum kerfisbundið misrétti Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun