Þæfð ull 9. nóvember 2004 00:01 "
Þæfing á ull er aldagömul vinnuaðferð sem notuð hefur verið til að útbúa efni í flíkur, tjöld og skó til að verjast kuldanum," segir Ásdís Birgisdóttir, ráðskona Heimilisiðnaðarfélagsins sem rekur Heimilisiðnaðarskólann þar sem haldin eru námskeið í þæfingu á ull. "Við byrjuðum með þessi námskeið fyrir tveimur árum síðan og þau hafa verið geysilega vinsæl," segir Ásdís en á námskeiðunum eru ýmist íslenskir eða erlendir kennarar, sem býður upp á meiri fjölbreytni. "Aðferðin er mjög einföld en möguleikarnir eru endalausir. Ullin er tekin óunnin og bleytt og sett örlítil sápa og svo nudduð saman. Eins og allir þekkja þéttist ull þegar hún fer í vatn og þessi eiginleiki ullarinnar býður upp á svo margt, því það þarf ekkert að prjóna úr henni eða slíkt, " segir Ásdís en á námskeiðunum er aðferðin kennd og útbúnir nokkrir hlutir. "Á námskeiðunum hjá okkur er hægt að gera allt mögulegt, alveg frá litlu jólaepli upp í að búa til lengjur af efnum sem eru blandaðar silki og bómullarefni, og þá er notuð ofsalega fín ull. Þessi efni eru til dæmis notuð í gluggatjöld, vegghengi, púða, fatnað, sjöl eða fleira, en það geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi hérna hjá okkur," segir Ásdís en næsta námskeið hefst á morgun í svokallaðri þurrþæfingu og þá eru gerðir litlir hlutir með nál, sem verða skrautmunir, myndverk, brúður, skartgripir og fleira. "Svo verðum við með jólanámskeið í lok nóvember þar sem við vinnum á tveimur kvöldum að verkefnum tengdum jólunum," segir Ásdís.
Nám Mest lesið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira