Kenndi af mikilli innlifun 10. ágúst 2004 00:01 "
Mér dettur strax í hug tveir fyrrverandi kennarar mínir, annars vegar Jón Böðvarsson sem kenndi mér sögu í Menntaskólanum við Hamrahlíð og hins vegar Rachel, leiklistakennari minn í San Diego í Kaliforníu þar sem ég var eitt sinn skiptinemi," segir Valgerður Matthíasdóttir, arkitekt og sjónvarpskona á Skjá einum, þegar hún er spurð út í eftirminnilegan kennara. "Fyrir mér eru ógleymanlegar kennslustundirnar hans Jóns Böðvarssonar. Hann hafði svo mikla ánægju af að kenna og lifði sig svo inn í það að hann hreif alla með þannig að allir hlustuðu á hann með athygli. Mér fannst ég meira að segja einu sinni sjá tár renna hjá honum, þvílík var innlifunin," segir hún. Þegar Valgerður var 17 ára gömul fór hún sem skiptinemi til San Diego í Kaliforníu og segir hún dvölina þar hafa verið ógleymanlega reynslu. "Þar hafði ég mjög skemmtilegan leiklistarkennara, hana Rachel en hún var flippaður, skemmtilegur og hress hippi og mikil listakona. Kennsluaðferðir hennar voru mjög nýstárlegar og allt öðruvísi en maður hafði vanist hér heima. Hún var náttúrulega að kenna okkur leiklist og fyrir vikið var allt miklu frjálslegra heldur en í hefðbundnu fagi. Hún fór til dæmis í ferðalag með bekkinn um Kaliforníu að skoða leikhús, sem mér fannst mér auðvitað mjög sérstakt og gaman," segir Valgerður.
Nám Mest lesið Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Lífið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Lífið Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Settu tærnar upp í loft og fengu knús Menning „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Lífið Hundrað skvísur blómstruðu saman Lífið Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Lífið samstarf Fleiri fréttir Settu tærnar upp í loft og fengu knús „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira