Viðskipti erlent

Atvinnuleysi eykst hraðar í Danmörku en spáð var
Atvinnuleysi í Danmörku jókst úr 3,7% og í 4,1% milli ágúst og september. Er þetta meiri aukning á atvinnuleysi en spáð hafði verið. Flestir reiknuðu með að það myndi aukast í 3,9%.

Tískuhúsið Versace í verulegum fjárhagsvandræðum
Hið þekkta tískuhús Versace á nú í verulegum fjárhagsvandræðum og neyðist nú til þess að segja upp fjórðungi af starfsfólki sínu á heimsvísu. Tískuhúsið hefur greint frá því að alls hafa 350 af 1.360 starfsmenn fengið uppsagnarbréf.

Norski seðlabankinn sá fyrsti sem hækkar stýrivexti
Norski seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína í dag og varð þar með fyrsti seðlabankinn í Evrópu til að gera slíkt frá því að fjármálakreppan skall á í fyrra. Hækkunin nam 0,25 prósentustigum og fóru vextirnir við það í 1,5%.

Rússneskur auðmaður í tugmilljarða skilnaði
Rússneski auðmaðurinn Boris Berezovsky stendur nú í skilnaðarmáli við eiginkonu sína Galinu þótt að þau hafi ekki búið saman í 10 ár. Galina gæti fengið allt að 100 milljónir punda, eða ríflega 20 milljarða kr., út úr skilnaðinum við Berezovsky.

Ráðgjöf um íslensku bankana gagnrýnd á breska þinginu
Breskir þingmenn hafa gagnrýnt hve eftirlitsstofnanir með fjármálafyrirtækjum í Bretlandi hafa verið tregar til að rannsaka þá ráðgjöf sem bresk bæjar-og sveitarfélög fengu í tengslum við fjárfestingar sínar hjá íslensku bönkunum áður en þeir komust í þrot í fyrra.

Sarkozy mokar 120 milljörðum í franska bændur
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti tilkynnti í dag efnahagsaðstoð upp á 650 milljónir evra eða um 120 milljarða kr. til handa frönskum bændum. Fyrir utan þessa aðstoð standa bændunum til boða ódýr lán upp á um 185 milljarða kr. í viðbót.

Sports Direct ætlar í mál við Kaupþing í Bretlandi
Íþróttavörukeðjan Sports Direct ætlar í mál við stjórnendur Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi. Málið er höfðað vegna yfirtöku á eignarhlutum Sports Direct í verslunarkeðjunum Blacks Leisure og JD Sports Fashion.

Kaupþing yfirtekur stærstu hlutabréfaeign Sports Direct
Reiknað er með að Sports Direct tapi stærstu hlutabréfaeign sinni í framhaldi af því að stjórnendur Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi yfirtaki hana í dag. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Retailweek.

Vaxtakostnaður almennings í Danmörku lækkar töluvert
Vaxtakostnaður almennings í Danmörku hefur lækkað töluvert frá því í fyrra. Vextir sem Danir greiða lánastofnunum sínum hafa þannig minnkað um 2,1 milljarð danskra kr., eða um 50 milljarða kr., milli mánaðanna nóvember í fyrra og september í ár.

Álverðið fór yfir 2.000 dollara í London í morgun
Heimsmarkaðsverð á áli fór yfir 2.000 dollara á markaðinum í London í morgun og stendur nú í 2.010 dollurum á tonnið m.v. þriggja mánaða framvirka samninga. Hefur verðið ekki verið hærra í ár síðan í sumar þegar það fór yfir 2.000 dollara í skamman tíma.

Apple gæti átt von á tugmilljarða reikningi frá Nokia
Það gæti kostað Apple gífurlegar upphæðir ef Nokia vinnur dómsmál sem farsímarisinn hefur höfað á hendur Apple fyrir ólögleg not af tækni Nokia sem enn er varin með einkaréttarákvæðum. Málshöfðunin beinist að notkun Apple á þessari tækni í iPhone símum sínum.

Hinir ríkustu gætu þróast yfir í aðra manntegund
Ríkustu íbúar jarðarinnar gætu þróast yfir í aðra manntegund í framtíðinni vegna framfara í líftækni og hönnun vélmenna. Þetta segir bandaríski framtíðarfræðingurinn Paul Soffo.

Vogunarsjóður á Guernsey tapar á Glitni
Vogunarsjóðurinn Close Enhanced Commodities Fund, sem staðsettur í á Guernsey gæti tapað allt að 17,5 milljónum punda eða um 3,5 milljörðum kr. á lánatryggingum sem veittar voru Glitni fyrir bankahrunið s.l. haust.

Finnar búa við mesta velmegun heimsbúa
Finnland er það land í heiminum þar sem íbúarnir búa við mesta velmegun. Ekki bara í efnahagslegum skilningi heldur einnig hvað varðar lýðræði og stjórnkerfi. Þetta kemur fram í nýjum lista frá Legatum Prosperity Index sem birtur verður í þessari viku.

Lánshæfismat Rússlands orðið svipað og Íslands
Lánshæfismat Rússlands er nú á svipuðum slóðum og Íslands, það er skammt frá svokölluðum „rusl-flokki." Þetta kemur hinsvegar ekki í veg fyrir gríðarlegan áhuga á ríkisskuldabréfaútboði upp á 18 milljarða dollara sem rússnesk stjórnvöld áforma á næsta ári.

Rannsaka ásakanir um peningaþvætti
Þeir sem rannsaka bankahrunið skoða nú á nýjan leik hvort ásakanir um að íslensku bankarnir hafi tengst peningaþvætti eigi við rök að styðjast. Þetta kemur fram á vef breska blaðsins Times.

Samdráttarskeiðinu lokið í Rússlandi
Samdráttarskeiðið í Rússlandi er á enda og gera má ráð fyrir um 2% hagvexti á fjórða ársfjórðungi í ár vegna hækkunar á olíuverði. Þetta var haft eftir Alexei Kudrin, fjármálaráðherra Rússa, í dag.

Nektardansmeyjar eiga að næla í kúnna til verslunarhúss
Franska verslunarhúsið Printemps í París hefur gripið til þess ráðs að ráða fimm nektardansmeyjar frá hinum þekkta kabarett The Crazy Horse í borginni til að troða upp í verslunargluggum sínum. Ætlunin er að lokka fleiri kúnna inn í Printemps sem orðið hefur illa úti í kreppunni eins og svo margar aðrar verslanir.

Statoil ógnað með refsiaðgerðum frá Barack Obama
Bandarískir þingmenn hafa krafist þess að Barack Obama bandaríkjaforseti beiti refsiaðgerðum gegn norska olíufélaginu StatoilHydro. Ástæðan er mikil umsvif Statoil í Íran og er félagið ekki það eina sem þingmennirnir vilja að sé refsað.

Carlsberg orðið háðara hráolíuverði en ölsölu sinni
Dönsku bruggverksmiðjurnar Carlsberg eru nú orðnar háðari hráolíuverðinu í heiminum en ölsölu sinni. Carlsberg fylgir Rússlandi upp og niður og í gegnum súrt og sætt hvað þetta varðar.

Ál, olía og aðrar hrávörur hækka nokkuð
Nokkrar hækkanir hafa verið á hrávörumörkuðum heimsins í morgun. Heimsmarkaðsverð á áli er komið í 1.983 dollara á tonnið á markaðinum í London og olían fór yfir 81 dollara á tunnuna á markaðinum í New York.

Jóakim Danaprins umfangsmikill í sölu á jólatrjám
Jóakim Danaprins verður umfangsmikill í sölu jólatrjáa í ár eins og fyrri ár. Frá herragarði hans, Schackenborg verða seld 16.000 jólatré af tegundinni Normannsþynur.

Umfangsmikil olíuleit að hefjast við Grænland
Grænland gæti orðið næsta mekka fyrir olíu- og gasiðnaðinn ef áætlanir heimastjórnar landsins ganga eftir. Næst vor hefst umfangsmikil olíuleit við landið og hafa 13 olíufyrirtæki ákveðið að taka þátt í henni.

Icesave eigandi sem á 10 milljónir inni gleymir kröfu
Eigandi Icesave-reiknings í Bretlandi sem á 50.000 pund eða rúmlega 10 milljónir kr. hefur enn ekki gert kröfu um að fá innistæðu sína borgaða. Geri hann slíkt ekki fyrir mánaðarmótin er krafan töpuð.

Samkeppnishæfni Dana á undir högg að sækja
Dönsk yfirvöld hafa nú áhyggjur af minnkandi samkeppnishæfni atvinnulífs landsins. Orsakir þessa eru launahækkanir innanlands og sterkt gengi dönsku krónunnar. Árið í fyrra var slæmt en árið í ár verður enn verra að því er segir á börsen.dk.

Danskir kaupmenn óttast aðra jólamartröð
Danskir kaupmenn óttast nú aðra jólamartröð, það er að jólainnkaupin í Danmörku verði jafn slök og þau voru í fyrra.

Notaði Glitnisbónusinn til að fjárfesta í gardínum
Sveinung Hartvedt fyrrum forstjóri Glitnir Securites í Noregi er hættur í bankageiranum og hefur notað myndarlegar launa- og bónusgreiðslur sínar frá Glitni í fyrra til þess að fjárfesta í fyritæki sem framleiðir gardínur.

Norðurlönd með mikla þörf fyrir nýjar flugvélar
Flugfélögin á Norðurlöndunum munu þurfa 404 nýjar farþegaflugvélar með yfir 100 sæti næstu tuttugu árin, frá 2009-2028, samkvæmt nýjustu markaðsspá Airbus. Þörfin fyrir þessar nýju vélar er aðallega vegna endurnýjunar á eldri og eyðslufrekari vélum sem verður skipt út fyrir vistvirkari vélar sem endurspegla umhverfisvitundina á svæðinu.

Evran í 1.50 dollara er stórslys fyrir Evrópu
„Evran í 1.50 dollara er stórslys fyrir efnhag Evrópu og iðnað álfunnar," segir Heri Guaino hægri hönd Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta. Evran hefur hækkað um 15% gagnvart dollaranum frá því í mars s.l. og í gærdag fór hún í 1.50 dollara um skamma stund.

Deutsche Bank þrefaldar hagnað sinn milli ára
Deutsche Bank skilaði uppgjöri sínu fyrir þriðja ársfjórðung í morgun. Hagnaður bankans nam 1,4 milljörðum evra, eða um 256 milljörðum kr. Er þetta þrefalt meiri hagnaður en á sama tímabili í fyrra er hann nam 435 milljónum evra.