Veiði


Loksins, loksins! Frábært vatn í Norðurá
Þær fréttir berast nú frá Norðurá að eftir margra vikna þrautagöngu hafa rigningar síðustu daga skilað ánni frábæru veiðivatni. Loksins, loksins myndi einhver segja en Veiðivísir telur sig geta fært rök fyrir því að vatnið í Norðurá hafi ekki verið meira síðan opnunardaginn 5. júní!!

Fnjóská: Tveggja daga holl með 27 laxa og mikið af silungi
Það er ekki bara dauði og djöfull í veiðinni þessa daganna en Veiðivísi bárust fregnir um ágætis veiði i Fnjóská á dögunum. Hollið sem var við veiðar í ánni var með 27 laxa og annað eins af silungi sem er prýðisveiði.

Tilboð í Langá komandi rigningarhelgi
Stangaveiðifélag Reykjavíkur býður nú tilboð á veiðileyfum í Langá um helgina. Vonast er eftir hækkandi sól í veiðinni með rigningum sem spáð er næstu daga.

Veiðitölur LV: Rangárnar með 843; allar hinar með 907!
"Mest árið 2010, en þá hafði verið landað 26.342 löxum. Minnst árið 2007, en þá var veiðin 12.473 laxar á þessum tíma. Þannig að talan þetta sumarið, 12.840 fiskar, er ekki sú lægsta sem við höfum heimildir um."

Afar dræmt í vatnslítilli Selá í Álftafirði
"Veiðin hefur verið mjög dræm í sumar, aðeins fjórtán laxar komnir á land," segir Haukur Elísson, einn landeiganda við Selá í Álftafirði.

Vatnsáin vatnslítil; Kropp í Gufuá
Kunnugur segja að Vatnsáin hafi ekki var jafn vatnslítil í tugi ára. Nokkuð mikið er af fiski á neðstu svæðunum í Gufuá og veiðin hefur róast í Búðardalsá.

Hraunsfjörðurinn sýður; stórbleikjur úr Þingvallavatni
Hraunsfjörðurinn sýður af bleikju þessa dagana og verða veiðimenn vitni að því hvar stórar bleikjutorfur fara um vatnið. Það fer hins vegar tvennum sögum af veiðinni þar á bæ; sumir greina frá því að þrátt fyrir mikið magn af bleikju sé hún grátlega treg til að taka agn veiðimanna en svo eru aðrir sem þvert á móti veiða vel.

Metdagur í Eystri Rangá
Metdagur var í Eystri Rangá í gær þegar 98 laxar komu á land. Veiðin í Ytri Rangá er einnig mjög góð.

Hróarslækur tekur við sér
Veiðin í Hróarslæk virðist loks komin almennilega í gang. Fram kemur á agn.is að þar hafi y-tveggja daga holl veitt 24 laxa um verslunarmannahelgina.

19 laxa dagur í Jöklu
Myndin sem fylgir fréttinni er af nýjum veiðistað ofan Steinboga, en með opnun laxastigans í byrjun mánaðar opnaðist fyrir nýtt veiðisvæði sem gefur mikla möguleika í framtíðinni. Veiðistaðurinn hlaut nafnið Hólaflúð og þar veiddust 9 laxar þann 4. ágúst. Þar lág einnig mikið af laxi og skömmu eftir að myndin var tekin veiddist 62 sentímetra lax. Fréttin er kannski sú að hann var grálúsugur, þrátt fyrir að Hólaflúð sé um 45 kílómetra frá sjó!

51 lax og 17 bleikjur í Andakílsá
Veiði í Andakílsá hefur verið fremur döpur það sem af er sumri. Í gær höfðu veiðst 17 bleikjur í ánni og 51 lax. Þetta kemur fram á vef SVFR.

Ríflega 50 punda lax veiddist í Syltefjarðará
Tæplega 53 punda lax veiddist í Syltefjarðará í Finnmörku í norður Noregi. Veiðimaðurinn hefur áður veitt 37 og 46 punda lax.




Jökla: Lax á fleygiferð upp Jökuldalinn!
Þess var ekki langt að bíða að lax veiddist fyrir ofan Steinbogann í Jöklu eftir að vatni var hleypt á laxastigann 1. ágúst.

Risaurriði veiddist í Grænavatni
Átján punda urriði veiddist í Grænavatni í fyrradag. Á vefsíðu Veiðivatna segir að sennilega sé þetta stærsti urriði sem veiðst hafi á stöng í Veiðivötnum.

Úr ýmsum áttum: Dunká þokkaleg og fín bleikjuveiði í Fljótaá
Veiði í Dunká og Fáskrúð hefur verið þokkaleg. Smá líf er að Tungufljóti en ástundun hefur verið lítil þar í sumar. Bleikjuveiðin er að bjarga Fljótaá.

Veiðitölur LV: Vikuveiðin 30 laxar í Norðurá!
Veiðitölur þessarar viku er dapurleg lesning. Aðeins Rangárnar státa af betri veiði en í fyrra. Víða annars staðar er um algjört hrun að ræða. Norðurá gaf 30 laxa í síðustu viku en í sömu viku í fyrra var veiðin rúmlega tífalt meiri. Blanda er ekki hálfdrættingur á við sumarið 2011.

Tilboð á stökum degi í Langá
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hyggst bjóða félögum sínum tilboðsdaga endrum og sinnum fram á haust. Í dag býðst dagur í Langá á 49 þúsund krónur.


Ytri-Rangá: Veiði eykst með lokun laxastiga
Athygli vekur að eftir að stiganum í Árbæjarfossi var lokað hefur veiðin á svæðum 8 og 9 stóraukist og hefur ekki verið eins góð í mörg ár, og er góður stígandi á þessum svæðum.

Hefur engar áhyggjur af húsbílavatni
Sérfræðingur hjá Matvælastofnun segir ólíklegt að sníkjudýr berist með erlendum húsbílum í íslenskt vatnakerfi. Hann hefur meiri áhyggjur af kjölfestuvatni skipa.

Hörgá að gefa flotta bleikjuveiði
Á vef Stangaveiðifélags Akureyrar segir frá góðri bleikjuveiði í Hörgá, en í veiðibókina á netinu eru skráðar 211 bleikjur ásamt slatta af urriða/sjóbirtingi og besti tíminn að ganga í garð.

Veiðibúðir Lax-ár á Grænlandi tilbúnar
Margar ár og dalir eru í nágrenni veiðibúðanna en bleikjurnar í Grænlandi geta farið í 10 pundin en algengast er að þær séu frá 2-7 pund að stærð.

Efri hluti Elliðaánna að koma sterkt inn
Nú er hins vegar að ganga í garð sá tími sumars þegar flugusvæðið á efri hluta Elliðaánna fer að koma sterkt inn, enda kom það í ljós á morgunvaktinni. Þá gáfu Höfuðhylur, Símastrengur, Hraunið, Hundasteinar og Árbæjarhylur allir laxa.

Nýjar íbúðir fyrir veiðimenn við Vesturhópsvatn
Stangaveiðifélag Keflavíkur hefur nú hafið útleigu á tveimur íbúðum í nýju húsi við Vesturhópsvatn. Aðal veiðin þar er urriði en einnig bleikja og murta.

Berast veirur og sníkjudýr í íslenskar ár með húsbílum?
Ein helsta smitleið veira og sníkjudýra milli laxveiðiáa í Noregi er þegar húsbílar losa og sækja sér vatn á tanka. Á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) er að finna athyglisverða frétt um þetta mál undir fyrirsögninni "Tifandi tímasprengja?".
