Rafíþróttir

Í beinni: Vodafone-deildin hefst á ný
Vodafone-deildin í Counter Strike: Global Offensive, eða einfaldlega CS:GO, hefst á nýjan leik í kvöld með tveimur leikjum.

Rafíþróttir undir hatt ÍBR: „Þau börn sem þátt hafa tekið blómstrað og félagslegur þroski þeirra tekið framförum“
Á fimmtugasta þingi Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBV) var samþykkt að rafíþróttir verði nú teknar undir hatt bandalagsins. Það var Björn Gíslason, formaður Íþróttafélagsins Fylkis, sem lagði fram tillöguna.

Tímamótatillaga um að rafíþróttir verði teknar undir hatt ÍBR
Björn Gíslason, formaður Fylkis, leggur í dag fram tímamótatillögu á 50. þingi Íþróttabandalags Reykjavíkur, ÍBR, þess efnis að rafíþróttir verði teknar undir hatt bandalagsins og starfi innan vébanda þess líkt og aðrar greinar.

Neðri deildir Vodafonedeildarinnar í CS:GO hefjast í lok október
Hinagð til hafa bestu lið landsinsí CS:GO mæst í Vodafonedeildinni þar sem að liðin etja kappi í þessum vinsæla fyrstu persónu skotleik. Nú eru að fara af stað neðri deildir Vodafonedeildarinnar þar sem að hverjir sem er geta skráð sig og tekið þátt.

Slæm nettenging og rafmagni slær út í undirbúningi fyrir heimsmeistaramótið
Nokkrir leikmenn sem taka þátt á heimsmeistaramótinu í League of Legends, sem fram fer í Laugardalshöll í næsta mánuði, hafa kvartað yfir slæmri nettenginu og að í sumum tilfellum slái rafmagni út á meðan að undirbúningur fyrir mótið er í fullum gangi á hóteli liðanna hér á landi.

Riðlarnir á heimsmeistaramótinu í League of Legends klárir
Heimsmeistaramótið í League of Legends hefst eftir tæpar tvær vikur og eins og áður hefur verið greint frá er mótið að þessu sinni haldið í Laugardalshöll hér á landi. Nú er ljóst hvaða lið munu mætast í riðlakeppni mótsins, en dregið var í riðla fyrr í dag.

Heimsmeistaramótið verði haldið í Laugardalshöll
Vefmiðillinn Dot Esports færði okkur þær fréttir á dögunum að þeirra heimildarmenn fullyrði að heimsmeistaramótið í League of Legends verði haldið á Íslandi í ár. Mótið verður haldið frá 5. oktober og miðillinn segir að það muni fara fram í Laugardalshöll.

Dusty Stórmeistarar í CS:GO annað árið í röð
Það var svo sannarlega veisla í beinni útsendingu þegar sýnt var frá úrslitaleik Stórmeistaramótsins í CS:GO á Stöð 2 Esport í gærkvöldi. Ríkjandi meistarar Dusty mættu reynslumiklu liði Vallea í Arena á Smáratorgi.

Dusty sigraði Vallea í úrslitum Stórmeistaramóts Vodafone
Dusty og Vallea áttust við í úrslitaviðureign Stórmeistaramóts Vodafafone í CS:GO í gær. Keppt var í Bo3 fyrirkomuagi þar sem að vinna þarf tvo af þrem leikjum til að sigra. Dusty hafði betur 2-0 og er því Stórmeistari Vodafone.

Úrslitin ráðast á stórmeistaramótinu í Counter-Strike
Komið er að úrslitastundu á stórmeistaramótinu í Counter-Strike: Global Offensive. Nýir meistarar verða krýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport annað kvöld þar sem mikið verður um dýrðir.

Fullyrða að heimsmeistaramótið verði haldið á Íslandi
Heimsmeistaramótið í tölvuleiknum League of Legends átti að fara fram í Kína í ár, en vegna sóttvarnaraðgerða þar í landi hefur mótið verið fært til Evrópu. Ekki hefur enn verið gefið upp í hvaða landi, en vefmiðillinn dotesports.com fullyrðir að mótið fari fram á Íslandi.

Íslenskur keppandi í ævilangt bann
Íslenskur keppandi í tölvuleiknum Overwatch hefur verið settur í ævilangt bann af Rafíþróttasamtökum Íslands, RÍSÍ. Umræddur keppandi dreifði nektarmyndum öðrum keppanda, en myndirnar voru teknar áður en sá varð lögráða, sem gerir málið enn alvarlegra.

Vallea mætir Dusty í úrslitum Stórmeistaramótsins í CS:GO
Annar keppnisdagur í Stórmeistarmótinu í CS:GO fór fram í gær, þar sem lið Kórdrengja, Vallea, KR og Fylkis kepptu um sæti í úrslitaleik mótsins. Það lið sem hafði betur í þremur viðureignum fór áfram í undanúrslitaleik sem leikinn var í lok kvölds í gær.

Dusty tryggði sér sæti í úrslitum Stórmeistaramótsins í CS:GO
Fyrsti keppnisdagur í Stórmeistarmótinu í CS:GO fór fram í gær, þar sem lið Rafmos, Dusty, Þórs og XY kepptu um sæti í úrslitaleik mótsins. Það lið sem hafði betur í þremur viðureignum fór áfram í undanúrslitaleik sem leikinn var í lok kvölds í gær.

„Bestu liðin, bestu leikmennirnir og mót þar sem allt getur gerst“
Spennan í íslenskum rafíþróttum nær hámarki næstu tvær helgar þegar stórmeistaramótið í Counter Strike: Global Offensive fer fram. Kristján Einar Kristjánsson, annar lýsenda mótsins, lofar harðri keppni og flottum viðburði.

Royal Never Give Up sigraði MSI
Royal Never Give Up, eða RNG, stóð uppi sem sigurvegari á MSI mótinu í League of Legends í dag eftir sigur í oddaleik gegn ríkjandi heimsmeisturum í DWG KIA. Þetta var í annað skipti sem RNG vinnur MSI.

Heimsmeistararnir þurftu oddaleik til að tryggja sig í úrslit MSI
DWG KIA og MAD Lions tókust á í seinni undanúrslitaviðuregninni á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll í dag. Heimsmeistararnir í DWG KIA lentu óvænt 2-1 undir en tveir afgerandi sigrar í röð tryggðu sætið í úrslitunum sem fara fram á morgun.

RNG í úrslit MSI eftir sigur gegn PSG Talon
RNG tryggði sig í dag í úrslitaeinvígi MSI mótsins í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll. RNG þótti sigurstranglegra liðið í einvíginu gegn PSG Talon og niðurstaðan 3-1 sigur kínverska liðsins.

Undanúrslit MSI hefjast á morgun
Undanúrslit MSI mótsins í League of Legends sem fram fer í Laugardalshöll hefjast á morgun. Liðin fjögur sem eftir eru, ásamt þjálfurum þeirra, sátu fyrir svörum blaðamanna í dag.

Íslendingar mæta frægustu og bestu FIFA-spilurum heims
Ísland hefur leik í undankeppni FIFA eNations Cup í dag. Næstu tvo daga leikur íslenska liðið sex leiki og verða þeir allir sýndir beint á Stöð 2 eSport.

MAD Lions og PSG Talon tryggðu sig í undanúrslit MSI
Seinasti dagur milliriðilsins á MSI sem haldið er í Laugardalshöll fór fram í dag. Cloud9 þurfti að treysta á að hvorki MAD Lions né PSG Talon myndi vinna leik í dag til að eiga möguleika á að stela sæti í undanúrslitum. Vonir þeirra urðu þó að engu áður en þeir spiluðu fyrsta leik dagsins.

Pentanet.GG náði í sinn fyrsta sigur en er úr leik á MSI
Sex leikir fóru fram á næst seinasta degi milliriðilsins á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll í dag. DWG KIA gulltryggði sæti sitt í undanúrslitum og Pentanet.GG á ekki lengur möguleika á að komast áfram.

Fyrsta tap RNG á MSI og mikilvægur fyrsti sigur Cloud9
Cloud9 náði loksins í sinn fyrsta sigur í milliriðli MSI þegar þeir mættu Pentanet.GG í uppgjöri botnliðanna. PSG Talon tókst það sem engum öðrum hefur tekist á MSI þegar þeir unnu RNG.

Cloud9 í erfiðri stöðu eftir annan dag milliriðilsins á MSI
Cloud9 tapaði báðum leikjunum sínum á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll í dag og eru enn án sigurs í milliriðlinum. RNG heldur sigrugöngu sinni áfram og eru ósigraðir í öllum 12 leikjum sínum.

RNG enn ósigraðir á MSI
Fyrsti dagur milliriðilsins fór fram á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll í dag. RNG sigraði báða leiki sína, og eru því ósigraðir í tíu leikjum.

XY með 15 lotur í röð og KR lagði loks Dusty
Sýnt var frá þremur leikjum í 14. og síðustu umferð Vodafonedeildarinnar í CS:GO í gærkvöldi á Stöð 2 eSport. Þór sendi Fylki í umspilssæti, XY lagði hafið með rosalegri endurkomu og Dusty tapaði sínum fyrsta og síðasta leik tímabilsins gegn feiknarsterkum KR-ingum.

Cloud9 og DWG KIA seinustu liðin til að tryggja sig í næstu umferð MSI
Seinasti dagur riðlakeppninnar á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll fór fram í dag þegar C-riðill kláraðist. Cloud9 snéri gengi sínu við og tryggði sig áfram í næstu umferð ásamt heimsmeisturunum í DWG KIA.

MAD Lions sigraði B-riðil þrátt fyrir óvænt tap í byrjun dags
Í dag kláraðist B-riðill MSI mótsins í League of Legends í Laugardalshöll. MAD Lions og PSG Talon þóttu líklegust til að fara upp úr þessum riðli og það var nákvæmlega það sem gerðist.

RNG taplausir og í fyrsta skipti sem ástralskt lið fer upp úr riðli á alþjóðlegu móti
Það var nóg um að vera á MSI mótinu í League of Legends sem haldið er í Laugardalshöll um helgina. Keppni í A-riðli er lokið, en Royal Never Give Up, eða RNG, kláruðu sinn riðil með átta sigrum í jafn mörgum leikjum. Með þeim upp úr riðlinum fara Pentanet.GG, en þetta er í fyrsta sinn sem ástralskt lið kemst áfram á alþjóðlegu móti.

Dusty tryggir sér sigurinn í Vodafonedeildinni
Sýnt var frá þremur leikjum í 13. umferð Vodafonedeildarinnar í CS:GO í gærkvöldi á Stöð 2 eSport. Dusty tryggði sér sigur í deildinni eftir spennandi leik gegn erkifjendunum í Hafinu. Nýliðar Tindastóls er örugirt frá falli eftir stórsigur á Þór og KR sparkaði Aurora endanlega úr deildinni og munu Kórdrengir koma í þeirra stað í haust.