
Handbolti

Tíu íslensk mörk í þýsku deildinni
Arnar Freyr Arnarsson og Arnór Þór Gunnarsson áttu fína leiki fyrir sín lið í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Magdeburg jafnaði Kiel að stigum á toppnum með stórsigri á Minden.

Óðinn Þór frábær þegar Kadetten Schaffhausen kom sér í góða stöðu
Óðinn Þór Ríkharðsson og Aðalsteinn Eyjólfsson eru einum sigri frá því að vera svissneskir meistarar í handbolta eftir sigur Kadetten Schaffhausen á HC Kriens í dag.

„Mjög stoltur að geta kallað mig landsliðsþjálfara“
Snorri Steinn Guðjónsson segist stoltur yfir því að hafa verið ráðinn þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta.

Erlingur sá þriðji sem gerir tvö lið að meisturum
Erlingur Richardsson er þriðji þjálfarinn sem gerir tvö lið að Íslandsmeisturum síðan úrslitakeppnin var tekin upp tímabilið 1991-92.

„Sjálfsagt að gagnrýna mig en það má vera málefnalegt“
„Hann má alveg hafa sína gagnrýni á þessu,“ sagði Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, á blaðamannafundi í dag þegar hann var spurður út gagnrýni Dags Sigurðssonar á vinnubrögð sambandsins við ráðningu nýs landsliðsþjálfara karla í handbolta.

Sjáðu Íslandsmeistaramyndband ÍBV
ÍBV er Íslandsmeistari karla í handbolta í þriðja sinn í sögunni. Liðið vann 3-2 sigur á Haukum í úrslitaeinvíginu.

Snorri Steinn í fullt starf og skrifaði undir þriggja ára samning
Vísir var með beina útsendingu og textalýsingu frá blaðamannafundi HSÍ þar sem Snorri Steinn Guðjónsson var kynntur sem næsti þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta.

Snorri Steinn kynntur til leiks á blaðamannafundi í dag
Nú þegar sléttir 100 dagar eru liðnir síðan tilkynnt var að Guðmundur Guðmundsson hætti sem landsliðsþjálfari karla í handbolta hefur HSÍ boðað til blaðamannafundar til að kynna nýjan landsliðsþjálfara til leiks.

Liðsfélagarnir með söngva og konfetti þegar Óðinn fékk Evrópudeildarboltann
Ísland á markahæsta leikmanninn í Evrópudeildinni á þessu tímabili en Óðinn Þór Ríkharðsson fór á kostum í vetur með svissneska félaginu Kadetten Schaffhausen.

Kári um Rúnar Kára: Ein bestu kaup ÍBV í handbolta og fótbolta fyrr og síðar
Rúnar Kárason og Kári Kristján Kristjánsson voru báðir mættir til strákanna í Seinni bylgjunni eftir oddaleik ÍBV og Hauka í Vestmannaeyjum í gærkvöldi þar sem Eyjamenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn.

Gaupi fékk morðhótanir á miðju heimsmeistaramóti
Guðjón Guðmundsson kláraði sína síðustu sjónvarpsvakt á Stöð 2 í gærkvöldi og eftir íþróttafréttirnar var Ísland í dag helgað honum og meira en þremur áratugum hans sem íþróttafréttamaður.

Dúrí dara dúrí dara dúrí dei: Myndir frá Íslandsmeistarakvöldinu í Eyjum
Eyjamenn urðu Íslandsmeistarar í handbolta karla í þriðja sinn í gærkvöldi þegar þeir unnu 25-23 sigur á Haukum í oddaleik, hreinum úrslitaleik um titilinn.

Ísak og Róbert: Sástu þetta rugl?
Ísak Rafnsson og Róbert Sigurðaron hafa myndað frábært varnarpar í vörn Íslandsmeistaraliðs ÍBV í vetur. Róbert heldur í atvinnumennsku í sumar og segir frábært að kveðja á þessum nótum.

Twitter eftir sigur ÍBV: Sturluð rimma
Eins og vanalega hafði fólk ýmislegt að segja á Twitter þegar ÍBV tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í kvöld.

Umfjöllun, myndir og bikarafhending: ÍBV - Haukar 25-23 | Eyjamenn Íslandsmeistarar eftir dramatík
ÍBV er Íslandsmeistari í handknattleik eftir 25-23 sigur á Haukum í oddaleik í Vestmannaeyjum í kvöld. Þetta er þriðji Íslandsmeistaratitill Eyjamanna sem unnu 3-2 sigur í einvíginu.

Heimir Óli: Það sýður á mér og þetta er ógeðslegt
Heimir Óli Heimisson var afar svekktur eftir tap Hauka gegn ÍBV í kvöld. Hann mun nú leggja skóna á hilluna og sagði endirinn á ferlinum súrsætan.

Ásgeir Örn: Við höfðum ekki kraftana, höfðum ekki klókindin
Ásgeir Örn Hallgrímsson þjálfari Hauka var svekktur eftir tap liðsins gegn ÍBV í oddaleik í kvöld. Haukar lentu í öðru sæti í tveimur stærstu keppnum tímabilsins en Ásgeir Örn tók við liðinu í nóvember.

„Ég er svo stoltur“
Eyjamenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í kvöld með 25-23 sigri á Haukum í Vestmannaeyjum. Theodór Sigurbjörnsson hefur verið í öllum þremur Íslandsmeistaraliðum ÍBV en í fyrsta sinn tryggði liðið sér titilinn á heimavelli.

Aron lék ekki þegar Álaborg fór illa að ráði sínu
Aron Pálmarsson kom ekkert við sögu hjá Álaborg þegar liðið beið lægri hlut gegn GOG í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn í handknattleik.

Fjögur mörk Díönu Daggar í sigri
Díana Dögg Magnúsdóttir og liðsfélagar hennar í Zwickau unnu þriggja marka sigur á Göppingen í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Fjör í upphitun Eyjamanna fyrir stórleikinn
Nú er rétt um hálftími þar til flautað verður til leiks ÍBV og Hauka í Vestmannaeyjum þar sem barist verður um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik. Svava Kristín Grétarsdóttir tók púlsinn á stuðningsmönnum ÍBV nú rétt áðan.

Kolstad einum sigri frá titlinum eftir dramatískan sigur
Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson eru nú aðeins einum sigri frá Noregsmeistaratitlinum í handbolta eftir 30-29 sigur Kolstad á Elverum í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi þeirra.

Kári: Bærinn er allur á bakvið okkur
Kári Kristján Kristjánsson segir eftirvæntingu ríkja hjá Eyjamönnum fyrir leikinn gegn Hakum nú á eftir.

Allan samdi til tveggja ára við Val
Valsmenn hafa nú tilkynnt um komu færeyska landsliðsmannsins Allans Norðberg en hann kemur til félagsins eftir að hafa gegn stóru hlutverki í liði KA á liðnum árum.

ÍBV getur orðið Íslandsmeistari í Eyjum í fyrsta sinn í tuttugu ár
Í kvöld fer Íslandsmeistarabikarinn á loft þegar ÍBV og Haukar mætast í oddaleik í úrslitaeinvígi í handbolta karla. ÍBV getur þar með orðið Íslandsmeistari á heimavelli í fyrsta sinn í tuttugu ár.

Rúnar Kára sjö mörkum frá meti Duranona
Rúnar Kárason er langmarkahæsti leikmaðurinn í úrslitaeinvíginu í Olís deild karla í handbolta en Eyjamaðurinn hefur skorað ellefu mörkum meira en næstu maður.

Fyrsta liðið síðan KA 2002 til að komast í oddaleik 2-0 undir
Haukar eru fyrsta liðið í 21 ár sem tryggir sér oddaleik eftir að hafa lent 2-0 undir í einvígi um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla.

Ein besta handboltakona Íslands hætti í handbolta í hálft ár
Haukakonan Elín Klara Þorkelsdóttir skaust upp á stjörnuhimininn í kvennahandboltanum í vetur eftir frábæra frammistöðu með Haukum í Olís deild kvenna, fyrst í deildinni en síðan enn frekar í úrslitakeppninni þar sem hið unga lið Hauka kom mjög á óvart.

„Stoltari af því að skila af mér góðum leikmönnum frekar en bikurum“
Erlingur Birgir Richardsson stýrir ÍBV í síðasta sinn í kvöld þegar liðið mætir Haukum í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn.

„Eitthvað sem ég þurfti að gera fyrir mig sem íþróttakonu“
Íslandsmeistarar Vals styrktu liðið sitt heldur betur á dögunum þegar landsliðsmarkvörðurinn Hafdís Renötudóttir ákvað að koma til Hlíðarendaliðsins frá Fram.