
Golf

Ótrúlegir yfirburðir hjá Fowler gegn Mickelson
Rickie Fowler sýndi ótrúleg tilþrif á öðrum keppnisdegi á heimsmótinu í holukeppni í golfi í gær þar sem hann "rúllaði“ upp Phil Mickelson í 2. umferð í 32-manna úrslitum. Hinn 22 ára gamli Fowler sýndi enga miskun og vann hinn þaulreynda Mickelson 6 / 5 – sem er stærsti ósigur Mickelson í holukeppni frá upphafi. Ungir kylfingar stálu senunni í gær á þessu sterka móti en Fowler var á 8 höggum undir pari þegar leiknum lauk á 13. holu.

Tiger var bitlaus gegn Björn og er úr leik í Arizona
Tiger Woods heldur áfram að koma á óvart en í gær var það á sjálfum golfvellinum þar sem hann tapaði gegn Dananum Thomas Björn í fyrstu umferð á heimsmótinu í holukeppni í Arizona í Bandaríkjunum.

Woods mætir Björn í fyrstu umferð í Arizona
Flestir af bestu kylfingum heims eru mættir til æfinga í Arizona í Bandaríkjunum þar sem að heimsmótið í holukeppni hefst á fimmtudaginn. Tiger Woods er á meðal keppenda og mætir hann Dananum Thomas Björn í fyrstu umferð. Alls eru 64 kylfingar á mótinu og er þeim skipt upp í fjóra riðla og eru 16 kylfingar í hverjum riðli.

Woods baðst afsökunar á því að hafa hrækt á flötina í Dubai
Tiger Woods baðst í gær afsökunar á því að hafa hrækt á flötina á lokadegi Dubai meistaramótsins sem lauk á sunnudaginn. Woods lét góða „slummu“ flakka á meðan hann var að undirbúa sig fyrir pútt og vakti hann ekki mikla lukku hjá forráðamönnum golfíþróttarinnar.

Verður Tiger sektaður fyrir að hrækja?
Það gengur lítið hjá Tiger Woods á golfvellinum um þessar mundir og hann varð aðeins í 20. sæti á Dubai Desert Classic mótinu sem lauk í dag.

Quiros sigraði í Dubai
Spánverjinn Alvaro Quiros fór með sigur af hómi í Dubai Desert Classic mótinu sem lauk í dag á Evrópumótaröðinni í golfi. Hann lék samtals á 11 höggum undir pari í mótinu og varð einu höggi betri en þeir Anders Hansen frá Danmörku og James Kingston frá Suður-Afríku.

Tiger fær milljarða vegna golfvallar sem ekki er búið að byggja
Viðskiptatímarít í sameinuðu arabísku furstadæmunum greinir frá því í dag að Tiger Woods hafi fengið tæplega 6,5 milljarða íslenskra króna fyrir að auglýsa golfparadís sem ekki er enn búið að byggja.

Tiger Woods blandaði sér í baráttuna í Dubai
Tiger Woods blandaði sér í baráttuna á Dubai meistaramótinu í golfi í morgun þegar hann lék á 66 höggum á öðrum keppnisdegi mótsins. Bandaríski kylfingurinn gerði engin mistök og fékk 6 fugla (-1) og hann er samtals á -7 höggum. Suður-Afríkumaðurinn Thomas Aiken er efstur þessa stundina á -10 en fjölmargir kylfingar eiga eftir að ljúka leik í dag.

McIlroy er efstur í Dubai – Tiger er sex höggum á eftir
Rory McIlroy er efstur að loknum fyrsta keppnisdegi á Dubai meistaramótinu í golfi sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Hinn 21 árs gamli Norður-Íri lék á 65 höggum eða 7 höggum undir pari og er hann tveimur höggum á undan Spánverjanum Sergio Garcia og Thomas Aiken frá Suður-Afríku.

Ballesteros vill breyta Ryderkeppninni í golfi
Spænski kylfingurinn Seve Ballesteros hefur glímt við erfið veikindi undanfarin ár en hann er enn með sterkar skoðanir á golfíþróttinni þar sem hann var sjálfur í fremstu röð á heimsvísu. Ballesteros er á þeirri skoðun að fjölga ætti keppnisdögunum í Ryderkeppninni og keppnin stæði yfir í fjóra daga og allir 12 kylfingar úr báðum liðum myndu leika á hverjum einasta keppnisdegi.

Ricky Fowler púttar á flötinni með framdekkinu (myndband)
Það blása ferskir vindar á PGA mótaröðinni í golfi þar sem að ungir kylfingar á borð við nýliða ársins 2010, Ricky Fowler, hafa látið að sér kveða. Fowler var m.a. valinn í bandaríska Ryderliðið s.l. haust og mörg stórfyrirtæki hafa gert samstarfssamninga við hinn 22 ára gamla kylfing.

Verður hinn 41 árs gamli Karlsson nýliði ársins?
Robert Karlsson gæti orðið elsti nýliði ársins á PGA mótaröðinn í golfi en hinn 41 árs gamli kylfingur frá Svíþjóð ætlar að einbeita sér að PGA mótaröðinni á þessu ári. Karlsson hefur á undanförnum árum verið í fremstu röð á Evrópumótaröðinn en hann er fluttur með fjölskyldu sína til Norður-Karólínu og ætlar sér stóra hluti á nýjum „vinnustað“.

Jhonattan Vegas stefnir á að bæta met í eigu Tiger Woods
Jhonattan Vegas er ekki þekktasti kylfingur heims en hann hefur vakið gríðarlega athygli á fyrstu mótunum á PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Vegas, sem er frá Venesúela, er á góðri leið með að slá met sem er í eigu Tiger Woods. Vegas er á góðri leið með að vinna sér inn 2 milljónir dala í verðlaunafé á PGA mótaröðinni með meiri hraða en Woods gerði á sínum tíma.

Framkvæmdum hætt við Tiger Woods golfvöll í Dubai
Golfvöllur sem Tiger Woods hafði lagt nafn sitt við í Dubai verður ekki að veruleika en framkvæmdum hefur verið hætt í bili að minnsta kosti.

Watson stóð af sér áhlaup Mickelson á Torrey Pines
Bubba Watson sýndi það og sannaði í gær að hann er á góðri leið með að skipa sér í hóp bestu kylfinga heims þegar hann tryggði sér sigur á Farmer meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi sem fram fór á Torrey Pines vellinum í San Diego. Fyrir sigurinn fékk Watson um 120 milljónir kr. í verðlaunafé.

Casey vann í Bahrein
Englendingurinn Paul Casey fór með sigur af hólmi á Volvo Golf Champions mótinu sem lauk í Bahrein í dag á Evrópumótaröðinni.

Tiger gerði engin mistök á fyrsta golfhring ársins 2011
Tiger Woods lék vel á fyrsta hringnum á Farmers meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi í gær en hann fékk þrjá fugla og gerði engin mistök. Woods lék á 69 höggum eða 3 höggum undir pari en hann er samt sem áður í 22.-34. sæti.

Tiger Woods ætlar sér stóra hluti á árinu 2011
Tiger Woods ætlar sér stóra hluti á árinu 2011 en árið 2010 var ekki gott ár hjá kylfingnum. Hann náði ekki að sigra á atvinnumóti í fyrsta sinn frá því hann gerðist atvinnumaður og einkalíf hans var aðalfréttaefnið þar sem upp komst um framhjáhald hans.

Tiger missti einn sinn stærsta styrktaraðila
Tímaritið Golf Digest hefur bundið enda á þrettán ára samstarf við kylfinginn Tiger Woods sem hefur þar með misst einn af sínum stærstu styrktaraðilum.

Birgir Leifur og Tinna valin kylfingar ársins 2010
Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Tinna Jóhansdóttir úr Golfklúbbnum Keili voru í dag valin kylfingar ársins af stjórn Golfsambands Íslands en valið fór fram í samráði við afreksnefnd sambandsins.

Tiger fær ekki fleiri fríar rakvélar
Tiger Woods hefur átt skelfilegt ár innan sem utan vallar og veislunni er ekki lokið. Nu hefur Gillette tilkynnt að það ætli sér ekki að framlengja samning sinn við Tiger sem rennur út um áramót.

Íslenskir kylfingar ósáttir við að klukkunni verði seinkað
Stjórn Golfsambands Íslands er allt annað en sátt við frumvarp um að seinka klukkunni á Íslandi og segir að það muni skerða tíma til golfiðkunar á sumrin.

„Það þekkir mig enginn þegar ég tek niður derhúfuna, ég er ekki Wayne Rooney“
Það hefur verið nóg að gera hjá Norður-Íranum Graeme McDowell á undanförnum vikum en hann hefur leikið á atvinnugolfmótum í nokkrum heimsálfum eftir að Ryderkeppninni lauk í byrjun október.

Tveir fyrstu keppnisdagarnir gerðu út um vonir Birgis Leifs
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG er úr leik á lokaúrtökumótinu í golfi sem fram fer á Spáni. Íslandsmeistarinn sýndi ágætis tilþrif á síðustu tveimur keppnisdögunum en afleitt gengi hans á fyrsta keppnisdeginum gerði út um möguleika hans á að komast áfram.

McDowell og Kaymer kylfingar ársins á Evrópumótaröðinni
Norður-Írinn Graeme McDowell og Þjóðverjinn Martin Kaymer voru í gær valdir kylfingar ársins á Evrópumótaröðinni en þetta er í fyrsta sinn í 26 ár þar sem tveir kylfingar deila þessum titli.

Birgir Leifur lék á einu höggi undir pari á þriðja keppnisdeginum
Birgir Leifur Hafþórsson lék vel á þriðja keppnisdegi lokaúrtökumótsins í golfi í dag á Spáni. Íslandsmeistarinn fékk fimm fugla á síðari 9 holunum og lék á 71 höggi eða einu höggi undir pari.

Engin kreppa hjá Tiger Woods sem flytur bráðlega í 6 milljarða kr. hús
Það eru engin kreppumerki á nýju heimili Tiger Woods sem bráðlega verður fullbyggt en það stendur við strandlengjuna í Flórída. Húsið er um 1.500 fermetrar að stærð og í garðinum er Woods með fjórar fullkomnar æfingaflatir og getur hann einnig slegið með drævernum á "æfingasvæðinu" í bakgarðinum.

Birgir Leifur: „Gríðarlega vonsvikinn út í sjálfan mig"
„Ég er gríðarlega vonsvikinn út í sjálfan mig. Ég missti algjörlega trúna á því sem ég var búinn að gera á einu augnabliki,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur þegar hann var inntur eftir ástæðum fyrir slæmu gengi hans á fyrstu tveimur keppnisdögunum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina.

Birgir Leifur bætti sig um 7 högg en staða hans er vonlítil
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG lék á 73 höggum í dag eða 3 höggum yfir pari á öðrum keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Birgir bætti sig um 7 högg frá því á fyrsta hringnum þar sem hann lék á 80 höggum.

McDowell sigraði Woods í bráðabana á mögnuðum lokahring á Chevron meistaramótinu
Norður-Írinn Graeme McDowell kom í veg fyrir að Tiger Woods næði að sigra á einu golfmóti á árinu 2010. McDowell sýndi fádæma keppnishörku á lokakeppnisdegi Chevron meistaramótsins og tryggði sér sigur á fyrstu holu í bráðabana gegn Tiger Woods sem var með fjögurra högga forskot á McDowell fyrir lokahringinn.