Golf

Ólafur Björn í skýjunum: Þarf að útvega mér kylfusvein fyrir PGA-mótið
Ólafur Björn Loftsson í Nesklúbbnum segir tilfinninguna ólýsanlega að hafa tryggt sér sæti á PGA-mótinu í Greensboro í Norður-Karólínu sem fram fer í næstu viku. Margir af bestu kylfingum heims verða meðal keppenda á mótinu.

Frábært afrek hjá Ólafi Birni - keppir á PGA-móti í næstu viku
Ólafur Björn Loftsson vann ótrúlegt afrek í dag þegar hann vann Cardinal-áhugamannamótið í golfi sem fór fram í Norður-Karólínu. Með sigrinum tryggði hann sér þátttökurétt á Wyndham Championship-mótinu sem fram fer í næstu viku og er á PGA-mótaröðinni.

Tvöfaldur sigur GR í Sveitakeppni GSÍ
Golfklúbbur Reykjavíkur sigraði í 1. keild karla í Sveitakeppni GSÍ sem fram fór á Leirdalsvelli um helgina, en GR sigraði GKG í úrslitaleiknum.

Útlitið gott fyrir Bandaríkjamenn - Óþekkt nöfn berjast um sigurinn
Bandaríkjamennirnir Brendan Steele og Jason Dufner eru efstir og jafnir fyrir lokahringinn á PGA-meistaramótinu í golfi á Johns Creek golfvellinum í Atlanta í Bandaríkjunum. Mótinu lýkur í dag.

Golfklúbbur Reykjavíkur í úrslit í karla- og kvennaflokki
Golfklúbbur Reykjavíkur, GR, og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG, mætast í úrslitum í 1. deild karla í Sveitakeppni Golfsambands Íslands. Í úrslitum í 1. deild í kvennaflokki mætast GR og Keilir. GR á titil að verja í báðum flokkum.

GR í góðum málum eftir riðlana í Sveitakeppninni
Golfklúbbur Reykjavíkur er í góðri stöðu í karla og kvennaflokki í Sveitakeppninni í golfi. Bæði lið urðu í efsta sæti í sínum riðli og spila í undanúrslitum síðar í dag.

Enn veldur Tiger Woods vonbrigðum
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er úr leik á PGA-meistaramótinu í golfi í Atlanta. Woods var samtals á tíu höggum yfir pari eftir tvo fyrstu hringina og var langt frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.

Tiger í tómu tjóni á fyrsta degi á PGA-mótinu
Tiger Woods byrjaði skelfilega á PGA-meistaramótinu í golfi sem fram fer í Johns Creek í Georgíu-fylki í Bandaríkjunum. Woods lék fyrstu 18 holurnar á 77 höggum eða sjö höggum yfir pari og er hann eins og er í 100. sæti á mótinu.

McIlroy flytur til Bandaríkjanna - þreyttur á ágengum aðdáendum
Norður-Írinn Rory McIlroy sér sig knúinn til þess að flytja til Bandaríkjanna. Hann segir ágenga norður-írska aðdáendur ástæðuna fyrir því að hann geti ekki lengur búið í heimalandinu.

Ummæli Williams vekja mikla athygli
Það mætti halda að kylfusveinninn Steve Williams hafi unnið Bridgestone-golfmótið um helgina. Athygli fjölmiðla er ekki síður á kylfusveininum en kylfingnum Adam Scott sem spilaði frábært golf og stóð uppi sem sigurvegari.

Tiger Woods ræður æskuvin sinn sem kylfusvein til bráðabirgða
Tiger Woods mætir til leiks á WGC-Bridgestone mótið í golfi á fimmtudaginn eftir tæplega þriggja mánaða fjarveru frá golfvellinum. Woods, sem nýverið rak kylfusvein sinn Steve Williams, hefur fengið æskuvin sinn til þess að bera golfpokann á mótinu.

Afmælisdagur sem gleymist ekki
Nökkvi Gunnarsson úr Nesklúbbnum fagnaði 35 ára afmælisdeginum með því að vinna Einvígið á Nesinu í gær. Hann er fyrsti heimamaðurinn sem vinnur mótið í heil tólf ár en Nesklúbbsfólk hefur margoft þurft að horfa upp á sína kylfinga rétt missa af sigri. Nö

Nökkvi: Ég kom sjálfum mér eiginlega á óvart
Nökkvi Gunnarsson hélt upp á 35 ára afmælið sitt með því að vinna Einvígið á Nesinu í dag. Hann tryggði sér sigurinn með því að vinna Inga Rúnar Gíslason í bráðabana.

Ingi Rúnar: Það er allt öðruvísi að spila á svona móti
Ingi Rúnar Gíslason úr Golfklúbbnum Kili varð annar í Einvíginu á Nesinu í dag eftir frábæra spilamennsku og harða keppni við Nökkva Gunnarsson sem tryggði sér sigur í bráðabana.

Tseng vann Opna breska kvennamótið
Yani Tseng frá Taívan sigraði Opna breska kvennamótið í golfi um helgina og varð um leið yngsta konan til að vinna fimm risamót í golfi.

Nökkvi vann Einvígið á Nesinu
Nökkvi Gunnarsson NK vann einvígið á Nesinu 2011. Hann tryggði sér sigur í bráðabana á lokaholunni en í öðru sæti var Ingi Rúnar Gíslason GKJ.

Bara einn hefur unnið Einvígið tvö ár í röð - hvað gerir Birgir Leifur?
Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í 15. sinn á Nesvellinum í dag. Keppendur léku níu holu höggleik í morgun og klukkan eitt hefst svo Einvígið (shoot-out). Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.

Einvígið á Nesinu á morgun - Birgir Leifur verður með
Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í fimmtánda skipti á Nesvellinum á morgun mánudaginn 1. ágúst. Nesklúbburinn hefur nú tilkynnt um það hverjir verða með í mótinu í ár.

Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig er best að slá úr sandinum?
Margir kylfingar óttast það mest að þurfa að slá boltann úr sandglompu þegar þeir leika golf. Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur, sýnir réttu aðferðina við þetta högg. Atriðið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs, sem sýndir eru á Stöð 2 sport.

Rory McIlroy stimplaður sem óþroskuð dekurrófa
Rory McIlroy stendur í ströngu eftir að hann skrifaði allt sem hann hugsaði í Twitterfærslu um sjónvarpsþul sem starfar á Golf Channel. Bandaríkjamenn eru allt annað en ánægðir með hversu hreinskilinn Norður-Írinn var í þessari færslu og kylfingurinn hefur nú fengið „stimpil“ sem „óþroskuð og barnaleg dekurrófa“.

Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á slá boltann í sveig frá vinstri til hægri?
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur, er með mörg högg í "pokahorninu“ og í þessu atriði sýnir hann hvernig hann ber sig að þegar hann slær boltann í sveig frá vinstri til hægri. Þetta boltaflug er oftast kallað "feid“ eða "slæs“ á meðal kylfinga.

Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á að undirbúa sig fyrir höggið?
Birgir Leifur Hafþórsson segir hér frá því hvernig hann skiptir undirbúningnum fyrir hvert högg í tvo þætti. Atvinnukylfingurinn útskýrir hugtökin "play box“ og "think box“ en Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari er með Birgi í þessu innslagi úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport.

Tiger Woods mætir til leiks á ný eftir 3 mánaða hvíld
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods tilkynnti í gær að hann ætlaði sér að vera með á Bridgestone meistaramótinu sem hefst á fimmtudaginn í næstu viku. Woods hefur ekkert keppt í golfi undanfarnar 11 vikur vegna meiðsla í hné og hásin. Á þessum tíma hefur hann misst af tveimur stórmótum, opna bandaríska meistaramótinu og opna breska.

Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á að slá hátt og lágt með sömu kylfunni?
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur, sýnir hér hvernig hægt er að slá ólík högg með sömu kylfu. Hann sýnir með einföldum hætti hvernig kylfingar geta slegið hátt og lágt högg með sömu kylfunni.

Golfskóli Birgis Leifs: Röðun hreyfinga í framsveiflunni
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur, fer hér yfir röðun hreyfinga í framsveiflunni. Atriðið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Rétt röð hreyfinga á mjöðmum, höndum og öxlum er eitt af lykilatriðum í golfsveiflunni og Birgir Leifur sýnir hér hvaða áherslur hann leggur sjálfur á í þessum atriðum.

Tíu ára einhentur golfstrákur sýnir snilldartakta - myndband
Tíu ára gamall enskur strákur, Leo Millar, hefur vakið athygli í heimalandinu og víðar fyrir golfleik. Þegar Millar fæddist kom í ljós að á hann vantaði alla fingur á hægri hendina en hann lætur það ekki aftra sér frá því að slá golfbolta og stunda aðrar íþróttir. Með hjálp stoðtækjasmiða hefur Millar fengið sérstakt "grip“ á hægri hendina og eftir að hafa stundað æfingar í aðeins sjö vikur er Millar farinn að slá golfboltann hátt í 200 metra.

Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á að taka stefnuna í högginu?
Birgir Leifur Hafþórsson fer hér yfir hvernig best er að stilla sér upp fyrir högg. Atvinnukylfingurinn bendir á algengustu villurnar sem áhugamenn gera þegar þeir stilla sér upp fyrir högg og taka þar með ranga stefnu frá upphafi. Atriðið er úr Golfskóla Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport.

Steve Williams allt annað en sáttur við Tiger Woods
Steve Williams, sem nýverið var sagt upp störfum sem kylfuberi hjá Tiger Woods, segir að virðing hans á bandaríska kylfingnum hafi ekki verið upp á marga fiska eftir að upp komst um framhjáhald Woods í lok árins 2009.

Páll Magnússon biður golfáhugamenn afsökunar
Páll Magnússon útvarpsstjóri og Haukur Örn Birgisson varaforseti Golfsambands Íslands voru í spjalli hjá Heimi og Kollu Í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Útvarpsstjóri útskýrði hvers vegna útsending frá Íslandsmótinu í höggleik hefði verið rofin á sunnudag og bað golfáhugamenn afsökunar.

Kristján Þór: Ég gaf þessu sénsinn
Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ lék vel á lokadeginum á Íslandsmótinu í höggleik, 69 höggum, þremur höggum undir pari og gerði hann atlögu að Axel Bóassyni sem var efstur fyrir lokahringinn. Kristján fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í Vestmannaeyjum árið 2008 en hann hefur endað í öðru sæti á tvö síðustu ár á Íslandsmótinu í höggleik.