Erlent
63 64 65 66 67 68 69 70 71 … 334 ›
Vargöld í Haítí Miklar óeirðir og átök voru í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí um helgina. Þungvopnuð gengi réðust á þjóðhöllina og kveiktu í húsnæði innanríkisráðuneytisins. Þetta kemur í kjölfar árásar á alþjóðaflugvöllinn, en lokað er fyrir alla flugumferð. Forsætisráðherra landsins, Ariel Henry, kemst ekki inn í landið. Erlent 11.3.2024 16:34
Stakk konu sína og þrjú börn Lík hjóna og þriggja barna fundust um helgina á heimili þeirra í í Honolulu á Havaíeyjum. Forsvarsmenn lögreglunnar segja útlit fyrir að maður hafi stungið eiginkonu sína og þrjú börn þeirra til bana, áður en hann svipti sig einnig lífi. Erlent 11.3.2024 15:01
Segir Trump ætla að stöðva alla aðstoð handa Úkraínumönnum Viktor Orban, umdeildur forsætisráðherra Ungverjalands, segir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðanda, hafa sagt sér að verði hann forseti á nýjan leik muni hann binda endi á alla hernaðaraðstoð til Úkraínu. Það er samkvæmt Orban liður í „nákvæmum áætlunum“ Trumps um að binda enda á stríðið í Úkraínu. Erlent 11.3.2024 14:26
Fritzl verður áfram á réttargeðdeild Josef Fritzl verður ekki fluttur í almennt fangelsi í Austurríki í bili og verður þess í stað áfram á réttargeðdeild í öryggisfangelsi. Fyrri ákvörðun hefur verið snúið af áfrýjunardómstól en upprunalegi úrskurðurinn byggði á því að ekki væri talið að ógn stafaði af Fritzl. Erlent 11.3.2024 12:25
Vita lítið um ástandið í Fukushima þrettán árum síðar Nærri því 29 þúsund manns hafa ekki getað snúið aftur til síns heima, þó þrettán ár séu liðin frá því að flóðbylgja, sem myndaðist vegna stærðarinnar jarðskjálfta, skall á ströndum Japans. Flóðbylgjan dró rúmlega 22 þúsund manns til dauða og olli einhverju versta kjarnorkuslysi heimsins frá Tsjernobyl-slysinu sem varð árið 1986. Erlent 11.3.2024 10:54
Katrín játar að hafa átt við myndina og biðst afsökunar Katrín prinsessa af Wales hefur beðist afsökunar á því að hafa deilt breyttri mynd af sér og börnum sínum. Myndin var afturkölluð af myndaveitum eftir að í ljós kom að átt hafði verið við hana. Erlent 11.3.2024 10:52
Fimmtíu slasaðir eftir að Boeing-vél „féll“ í miðju flugi Fimmtíu manns þurftu aðhlynningu og þrettán voru lagðir inn á sjúkrahús eftir að „tæknilegir örðugleikar“ komu upp í flugi Latam Airlines frá Sydney til Auckland sem urðu þess valdandi að flugvélin „féll“ og farþegar hentust úr sætum sínum. Erlent 11.3.2024 08:45
Segir átökin munu vara fjórar til átta vikur til viðbótar Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur hafnað þeirri staðhæfingu Joe Biden Bandaríkjaforseta að aðgerðir Ísraelsmanna á Gasa séu að gera þeim meiri skaða en þau eru að hjálpa þeim. Erlent 11.3.2024 07:56
Myndaveitur afturkalla myndina af Katrínu og börnunum Myndaveitur hafa gefið út svokallaða „kill notice“ vegna fyrstu myndarinnar sem breska konungsfjölskyldan birti af Katrínu prinsessu af Wales og börnum hennar eftir að ljóst varð að átt hefur verið við myndina. Erlent 11.3.2024 06:55
Fimm úr skíðahópnum fundnir látnir Fimm skíðamenn sem leitað var að í Sviss í gær hafa fundist látnir. Sjötta mannsins er enn saknað. Fólkið var á aldrinum 21 til 58 ára og fimm tilheyrðu sömu fjölskyldunni. Erlent 11.3.2024 06:25
Hægrimenn taka fram úr sósíalistum í Portúgal Þingkosningar Portúgala fóru fram í dag. Mið-hægriflokkurinn Lýðræðisbandalagið virðist ætla að fara með sigur úr býtum en hann leiðir naumlega eftir að 92% atkvæða hafa verið talin. Erlent 10.3.2024 23:44
Björgunarsveitir leita týnds skíðahóps í Ölpunum Mikill fjöldi björgunarfólks í Sviss leitar nú hóps skíðafólks sem ekki hefur spurst til síðan í nótt. Vegna slæmra veðurskilyrða gengur leitin hægt. Erlent 10.3.2024 22:36
Ummæli páfa um ábyrgð Úkraínu vekja hörð viðbrögð Ummæli sem Frans páfi lét falla í viðtali um að Úkraínumenn ættu að hafa kjarkinn til þess að stilla til friðar og binda enda á stríðið gegn Rússlandi hafa vakið hörð viðbrögð. Stjórnmálamenn frá bæði Úkraínu og Evrópu hafa fordæmt ummælin. Erlent 10.3.2024 17:57
Fyrsta opinbera myndin af prinsessunni eftir aðgerðina Kensingtonhöll birti í dag fyrstu opinberu mynd af Katrínu, prinsessu af Wales, síðan hún fór undir hnífinn í janúar. Erlent 10.3.2024 13:34
Vill þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Grænlands Aqqalu C. Jerimiassen, formaður grænlenska stjórnarandstöðuflokksins Atassut, segir tímabært að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Grænlands frá Danmörku. Erlent 10.3.2024 11:52
Írar þverneituðu stjórnarskrárbreytingum um „konuna á heimilinu“ Írar neituðu stjórnarskrárbreytingum sem vörðuðu orðalag um „konuna á heimilinu“ og hvernig talað er um fjölskylduna í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær. Erlent 10.3.2024 09:32
Bandaríkjaher lagður af stað til Gasa til að smíða bryggju Bandaríska herskipinu Frank S Besson ofursti var siglt úr höfn í Virginíu í gær og stefnan tekin á Gasaströndina. Þar stendur til að smíða tímabundna flotbryggju, sem ætlað er að auðvelda afhendingu hjálpargagna. Erlent 10.3.2024 08:48
Svíar og Kanadamenn hefja greiðslur á ný Svíar og Kanadamenn hafa ákveðið að halda áfram greiðslum til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) eftir að hafa fryst þær í kjölfar ásakana um aðild starfsmanna samtakanna að hryðjuverkaárásum Hamasliða sjöunda október 2023. Erlent 9.3.2024 15:25
Minnst fimmtán drónaárásum Húta afstýrt í nótt Danska freigátan Iver Huitfeld skaut niður fjóra dróna í nótt sem Hútar sendu út til að gera árás á það. Það kom fram í tilkynningu frá danska hernum frá í morgun. Minnst fimmtán drónar gerðu atlögu að skipaumferð sunnanvert í Rauðahafinu í nótt. Erlent 9.3.2024 10:49
Danir skuli forðast fjöldasamkomur vegna hryðjuverkahættu Danska utanríkisráðuneytið hefur varað danska ríkisborgara búsetta í Moskvu við að sækja fjöldasamkomur í borginni um helgina. Í varúðartilkynningu til þeirra kemur fram að aukin hætta sé á árásum á fjöldasamkomur í Moskvu. Ekki liggur þó fyrir hvað býr á baki þessum viðvörunum. Erlent 8.3.2024 22:45
Fimm dóu þegar hjálpargögn lentu á þeim Að minnsta kosti fimm manns eru sagðir hafa látið lífið þegar hjálpargögn sem Bandaríkjamenn vörpuðu á Gasaströndina úr lofti í gær lentu á þeim. Fallhlíf allavega eins vörubrettis opnaðist ekki og það féll til jarðar á miklum hraða. Erlent 8.3.2024 15:22
Stefnuræða Bidens: Fór hörðum orðum um Trump en nefndi hann aldrei á nafn Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, flutti í gær sína árlega stefnuræðu á bandaríska þinginu þar sem hann fór hörðum orðum um Donald Trump, fyrrverandi forseta og væntanlegan mótframbjóðanda hans, án þess þó að nefna hann á nafn. Þar að auki færði hann rök fyrir öðru kjörtímabili sínu og gagnrýndi Repúblikana harðlega. Erlent 8.3.2024 11:39
Vara við árásum öfgamanna í Moskvu Sendiráð Bandaríkjanna í Moskvu varaði við því í gærkvöldi að „öfgamenn“ hyggðu á árásir í borginni. Til stæði að ráðast á staði þar sem fólk kæmi saman, eins og á tónleikum, og voru Bandaríkjamönnum í Rússlandi ráðlagt að forðast mannmergð næstu tvo sólarhringa. Erlent 8.3.2024 10:28
Um 280 börnum rænt í bænum Kuriga í Nígeríu Byssumenn á mótorhjólum hafa rænt yfir 280 skólabörnum í bænum Kuriga í Kaduna í Nígeríu. Nemendurnr höfðu safnasta saman á samkomustað í gær þegar mennirnir mættu vopnaðir á svæðið og tóku börnin með sér og einn kennara. Erlent 8.3.2024 08:22
Leyndardómurinn um MH370 ekki leystur tíu árum eftir hvarfið Tíu ár eru liðin frá því flugvélin MH370 frá Malaysia Airlines hvarf þegar verið var að fljúga henni frá Kuala Lumpur til Peking. Enn er ekki vitað með vissu hvað varð um Boeing 777 flugvélina eða þær 239 manneskjur sem voru um borð. Erlent 8.3.2024 08:01
Kynfæralimlestingum kvenna fjölgar og stúlkurnar yngjast Stúlkum og konum sem hafa verið neyddar til að gangast undir kynfæralimlestingu hefur fjölgað um 15 prósent á síðustu átta árum. Samkvæmt Unicef hafa 230 milljón stúlkur og konur á lífi gengist undir aðgerðina, samanborið við 200 milljónir árið 2016. Erlent 8.3.2024 07:10
Bandaríkjamenn hyggjast reisa bráðabirgðahöfn á Gasa Bandaríkjamenn hyggjast reisa tímabundna höfn við strendur Gasa til að greiða fyrir umfangsmiklum flutningum neyðargagna til svæðisins. Frá þessu greindi Joe Biden Bandaríkjaforseti í stefnuræðu sinni í gær. Erlent 8.3.2024 06:52
Örplast tengt við hjartasjúkdóma, heilablóðföll og dauða í nýrri rannsókn Ítölsk rannsókn hefur vakið athygli vegna þess að hún sýnir í fyrsta sinn tengsl milli örplasts og hjartasjúkdóma. Rannsóknin er ýmsum takmörkunum háð en vísindamenn sem rannsaka umhverfisáhrif á hjarta- og æðakefið segja hana marka tímamót. Erlent 8.3.2024 00:23
Þriðja ferð Starship mögulega í næstu viku Mögulegt er að starfsmenn SpaceX geri þriðju tilraun sína með geimskipið Starship í næstu viku. Fáist leyfi hjá þar til gerðum yfirvöldum og leyfi veður, stendur til að skjóta Starship á loft næsta fimmtudag. Erlent 7.3.2024 16:13
Svíþjóð formlega gengin í NATO Svíþjóð fékk klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma formlega aðild að Atlantshafsbandalaginu, þegar forsætisráðherrann undirritaði plagg þess efnis. Svíþjóð er þannig þrítugasta og annað ríki bandalagsins. Svíar sóttu um inngöngu í bandalagið fyrir tveimur árum, vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 7.3.2024 16:10