Handbolti
288 289 290 291 292 293 … 293 ›
Þjóðverjar í 5. sæti Þjóðverjar höfnuðu í 5. sæti á Evrópumóti landsliða í handbolta í Sviss en þeir sigruðu Rússa í leik um sætið í dag, 32-30. Staðan í hálfleik var 18-16 fyrir Rússa. Nú eigast við Króatar og Frakkar í fyrri undanúrslitaleik mótsins og er staðan í hálfleik 12-10 fyrir Frakka. Síðar í dag mætast svo Danir og Spánverjar í hinum undanúrslitaleiknum. Sport 4.2.2006 14:04
Ólafur hrifinn af Strand Norskir fjölmiðlar halda skiljanlega ekki vatni yfir landsliðsmanninum Kjetil Strand, sem setti nýtt Evrópumótsmet í gær þegar hann skoraði 19 mörk í leiknum gegn Íslendingum í milliriðli. Á heimasíðu norska blaðsins VG er haft eftir Ólafi Stefánssyni að Strand sé nógu góður til að spila með liði í spænska eða þýska handboltanum. Sport 3.2.2006 16:08
Spilar ekki aftur fyrir Viggó Sigurðsson Vilhjálmur Halldórsson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður danska liðsins Skjærn, segist aldrei ætla að spila aftur undir stjórn Viggós Sigurðssonar eftir að þeir áttu hreint ekki í skap saman á EM í Sviss. Þetta kemur fram í viðtali við staðarblað í Danmörku í dag. Sport 3.2.2006 12:02
Danir lögðu Rússa og mæta Spánverjum Danir tryggðu sér sæti í undanúrslitunum á EM í Sviss í kvöld þegar liðið lagði Rússa sannfærandi 35-28. Danska liðið mætir því Spánverjum í undanúrslitum mótsins og í hinum undanúrslitaleiknum eigast við Frakkar og Króatar. Þjóðverjar og Rússar keppa um 5. sætið, en íslenska liðið hafnaði í 7. sæti á mótinu. Sport 2.2.2006 20:59
Dómararnir jörðuðu okkur Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari var hundfúll eftir tapið gegn Norðmönnum í lokaleik íslenska liðsins í milliriðli á EM í Sviss í kvöld. Viggó sagði að vissulega hefði þreytan verið farin að segja til sín hjá sínum mönnum vegna þeirra skarða sem höggvin hafa verið í hópinn, en vandaði dómurum leiksins ekki kveðjurnar. Sport 2.2.2006 20:49
Jafnt í hálfleik hjá Rússum og Dönum Staðan í leik Dana og Rússa er jöfn 13-13 í hálfleik, en þetta er lokaleikurinn í milliriðli okkar Íslendinga. Íslenska liðið þarf að treysta á að Rússar vinni leikinn með 4-5 mörkum til að eiga möguleika á að fá að spila um fimmta sætið í keppninni. Sport 2.2.2006 20:09
Frakkar í undanúrslitin Frakkar tryggðu sér í kvöld farseðilinn í undanúrslitin á EM í Sviss með öruggum sigri á Úkraínu 30-20 og lyftu sér í efsta sæti riðlis síns. Spánverjar geta endurheimt efsta sætið með sigri á Slóvenum í kvöld, en leikur liðanna er ný hafinn. Sport 2.2.2006 19:11
Tap fyrir Norðmönnum Íslenska landsliðið brotlenti í síðari hálfleik gegn Norðmönnum í kvöld og tapaði 36-32 og því er sæti í undanúrslitum mótsins úr sögunni. Ef úrslit í leik Dana og Rússa í kvöld verða okkur í hag, er þó enn möguleiki á að liðið spili leik um fimmta sætið. Ólafur Stefánsson var markahæstur með 9 mörk, Guðjón Valur Sigurðsson 6 og Róbert Gunnarsson og Snorri Steinn 5. Sport 2.2.2006 18:32
Ísland yfir gegn Norðmönnum Íslendingar hafa forystu 16-14 í hálfleik gegn Norðmönnum í lokaleik sínum í milliriðli á EM í Sviss. Ólafur Stefánsson hefur skorað 4 mörk fyrir íslenska liðið, Róbert Gunnarsson 3, og þeir Guðjón Valur, Snorri Steinn og Ásgeir Örn 2 hver. Kjetil Strand hefur farið á kostum hjá norska liðinu og er kominn með 9 mörk í hálfleiknum. Sport 2.2.2006 17:38
Króatar í undanúrslit Króatar tryggðu sér sæti í undanúrslitum EM í Sviss í dag þegar liðið lagði Serba og Svartfellinga 34-30. Góður lokakafli tryggði Króötum sigurinn í dag eftir að jafnræði hafði verið með liðunum framan af og því er spennan í milliriðli okkar Íslendinga mikil fyrir leikinn gegn Norðmönnum í dag. Sport 2.2.2006 16:39
Guðjón Valur ekki sáttur "Við töpum þessu á eigin klaufaskap því ég get ekki séð að þeir hafi verið neitt betri en við," sagði hornamaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson hundsvekktur í leikslok, eftir að Íslendingar töpuðu fyrir Króötum í dag. Sport 1.2.2006 22:29
Einar ekki með gegn Norðmönnum Skyttan Einar Hólmgeirsson verður ekki með íslenska landsliðinu í lokaleik liðsins í milliriðlum á morgun eftir að hafa fengið heilahristing í leiknum gegn Króatíu í dag. Einar var að sögn nafna hans Þorvarðarsonar langt fram í síðari hálfleikinn að ná áttum þar sem læknar stumruðu yfir honum við hliðarlínuna. Sport 1.2.2006 21:30
Spánn aftur á toppinn Spánverjar eru komnir aftur á toppinn í 1. milliriðlinum á EM í Sviss eftir sigur á Úkraínu í lokaleik kvöldsins í riðlinum, 31-29. Spánverjar hafa því hlotið 7 stig í riðlinum, Frakkar 6 og Þjóðverjar 5. Spánn mætir Slóveníu á morgun og nægir eitt stig til að tryggja sér sæti í undanúrslitunum. Sport 1.2.2006 21:14
Danir lögðu Norðmenn Danir lögðu Norðmenn 35-31 í lokaleik 2. milliriðilsins í kvöld og skutust með sigrinum upp fyrir okkur Íslendinga á markamun. Danska liðið hefur einu marki betri markatölu en íslenska liðið og því er ljóst að allt verður í járnum í lokaumferðinni á morgun. Sport 1.2.2006 20:58
Frakkar burstuðu Póverja Frakkar áttu ekki í erfiðleikum með Pólverja í 1. milliriðlinum á EM í Sviss í dag og unnu stórsigur 31-21. Frakkar eru þar með á toppi riðilsins með 6 stig, en Spánverjar geta komist í efsta sætið með sigri í Úkraínu í kvöld. Sport 1.2.2006 20:23
Verðum að klára Norðmenn Hreiðar Guðmundsson, markvörður íslenska landsliðsins, var ekki kátur eftir tapið gegn Króötum í kvöld. "Þetta er ömurlegt. Við fengum tækifæri til að ná í stig undir lokin, en því miður gekk það ekki eftir, það vantaði herslumuninn. Það var slæmt að missa þá Alex og Einar, en við verðum bara að safna liði og klára Norðmennina á morgun," sagði Hreiðar, sem náði sér ekki á strik í leiknum í dag. Sport 1.2.2006 20:18
Balic of stór biti fyrir íslenska liðið Króatar höfðu nauman sigur á íslenska landsliðinu í handbolta á EM í Sviss nú rétt í þessu 29-28 í hörkuleik. Það var ekki síst fyrir stórleik Ivano Balic sem lið Króatíu náði að tryggja sér sigurinn, en hann skoraði 8 mörk í leiknum, mörg þeirra á ótrúlegan hátt og var gríðarlega mikilvægur í varnarleiknum. Ólafur Stefánsson var markahæstur í íslenska liðinu með 8 mörk og Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7. Sport 1.2.2006 18:33
Jafnt hjá Íslandi og Króatíu í hálfleik Staðan í leik Íslands og Króatíu er jöfn 13-13 í hálfleik. Snorri Steinn Guðjónsson er markahæstur í íslenska liðinu með 4 mörk, þar af 1 úr víti, Ólafur Stefánsson hefur skoraði 3 mörk og þeir Einar Hólmgeirsson, Róbert Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson eru með 2 hver. Sport 1.2.2006 17:40
Rússar sigruðu Serba Rússar unnu í dag næsta auðveldan sigur á Serbum og Svartfellingum í 2. milliriðli á EM í Sviss 29-21. Þetta þýðir að Rússar hafa tekið forystu í riðlinum með 6 stig, en nú klukkan 17 mætast Íslendingar og Króatar í sama riðli. Í 1. milliriðli mættust Þjóðverjar og Slóvenar, þar sem þýska liðið hafði betur 36-33. Sport 1.2.2006 16:19
Erfiður leikur við Króata í dag Íslenska landsliðið á mjög erfiðan leik fyrir höndum gegn Króötum í milliriðli 2 í Gallen í dag klukkan 17. Leikur Serba og Rússa er þegar hafinn og klukkan 19:15 eigast við Norðmenn og Danir. Í 1. milliriðlinum mætast Slóvenar og Þjóðverjar klukkan 14:15, þá Pólverjar og Frakkar klukkan 16:45 og Úkraína og Spánn keppa klukkan 19:15. Sport 1.2.2006 15:01
Gríðarlegt áfall fyrir landsliðið Hinn harðskeytti Alexander Petersson, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, kjálkabrotnaði í leiknum við Rússa í dag og verður því ekki meira með liðinu í keppninni. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir íslenska liðið, því Petersson er algjör lykilmaður í liðinu - ekki síst í varnarleiknum. Sport 31.1.2006 22:55
Serbar unnu Norðmenn Lið Serbíu og Svartfjallalands lagði Norðmenn naumlega að velli í kvöld í milliriðli okkar Íslendinga, 26-25. Að loknum fyrsta deginum er íslenska liðið í efsta sæti með fimm stig, Rússar í öðru með fjögur, eins og Króatar, Danir hafa þrjú, Serbar tvö og Norðmenn eru enn án stiga. Sport 31.1.2006 21:18
Króatar lögðu Dani Króatar unnu nauman sigur á dönum í 2. milliriðli EM í handbolta nú undir kvöldið 31-30, eftir að hafa verið yfir 15-14 í hálfleik. Króatar hafa því hlotið 4 stig í riðlinum, en Danir hafa þrjú. Íslenska liðið er á toppi riðilsins með 5 stig. Þá sigruðu Frakkar Slóvena í dag 34-30. Sport 31.1.2006 18:47
Þjóðverjar völtuðu yfir Úkraínu Þjóðverjar voru ekki í vandræðum með Úkraínumenn í 1. milliriðlinum á EM í handbolta í dag og sigruðu 36-22 eftir að hafa verið með aðeins tveggja marka forystu í leikhléi. Florian Kehrmann var markahæstur hjá Þjóðverjum með 9 mörk og Henning Fritz varði 21 skot í markinu. Sport 31.1.2006 16:44
Glæsilegur sigur Íslendinga á Rússum Íslenska landsliðið í handbolta vann glæsilegan sigur á Rússum í Sviss í dag 34-32, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 17-15. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 11 mörk fyrir íslenska liðið og Ólafur Stefánsson gerði 8 mörk. Sport 31.1.2006 16:14
Íslendingar yfir gegn Rússum í hálfleik Íslenska landsliðið í handknattleik hefur yfir 17-15 gegn Rússum þegar flautað hefur verið til leikhlés. Ólafur Stefánsson hefur skorað 6 mörk, Guðjón Valur 5 og Snorri Steinn er með 5 mörk, þar af eitt úr vítakasti. Sport 31.1.2006 15:27
Ásgeir Örn í landsliðshópinn Ásgeir Örn Hallgrímsson, leikmaður Lemgo í Þýskalandi, hefur verið kallaður inn í íslanska landsliðshópinn í stað Vilhjálms Halldórssonar og er væntanlegur á æfingu liðsins í kvöld. Sport 30.1.2006 13:40
Danir efstir í riðlinum Danir tryggðu sér í kvöld efsta sætið í C-riðlinum á EM í Sviss þegar þeir lögðu Serba og Svartfellinga með 33 mörkum gegn 29. Danir hirtu með því efsta sæti riðilsins og fara áfram í milliriðil með okkur Íslendingum með þrjú stig í farteskinu líkt og íslenska liðið. Serbarnir fara einnig áfram, en án stiga. Sport 29.1.2006 21:05
Við vildum vinna þennan leik Viggó Sigurðsson var nokkuð vonsvikinn eftir tapið gegn Ungverjum í lokaleik liðsins í C-riðli í dag og sagðist hafa vonast eftir að klára riðilinn með stæl, þó úrslit leiksins í dag skipti engu máli upp á framhaldið. Sport 29.1.2006 20:58
Línur að skýrast fyrir milliriðilinn Íslenska landsliðið í handknattleik mun leika með Serbum, Dönum, Norðmönnum, Rússum og Króötum í milliriðlinum á EM í Sviss, en keppni í riðlinum hefst á þriðjudag. Sport 29.1.2006 20:04