Kauphöllin
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 78 ›
Sameinað verslunarfélag væri með yfir sex milljarða í rekstarhagnað Áætlað er að EBITDA-hagnaður sameinaðs félags Samkaupa og Heimkaupa/Orkunnar hafi verið vel yfir sex milljarðar króna í fyrra, að mati Skeljar fjárfestingafélags. Það myndi jafngilda tæplega níu prósenta framlegðarhlutfalli, litlu meiri borið saman við Haga. Innherji 9.2.2024 15:46
Play í hlutafjáraukningu og á aðalmarkað Forsvarsmenn Play hafa hafið undirbúning á hlutafjáraukningu fyrir félagið. Ráðgert er að sækja allt að þrjá til fjóra milljarða króna í nýtt hlutafé. Þá stefnir félagið á að flytja sig yfir á aðalmarkað Kauphallarinnar á fyrri helmingi ársins. Gengi félagsins í Kauphöllinni var sextán prósentum lægra en í gær þegar markaðir opnuðu í dag. Viðskipti innlent 9.2.2024 10:11
Nýr forstjóri bregst við gagnrýni fjárfesta og lækkar verulega afkomuspá Marel Nýr forstjóri Marel hefur komið til móts við gagnrýni fjárfesta um óraunhæf rekstrarmarkmið með því að lækka talsvert afkomuspá félagsins fyrir þetta ár og segir að fyrsti fjórðungur „verði þungur“ vegna krefjandi markaðsaðstæðna. Framlegðarhlutfall Marel var lítillega undir væntingum greinenda á síðasta fjórðungi 2023 á meðan nýjar pantanir jukust meira en gert var ráð fyrir auk þess sem félagið skilaði verulega bættu sjóðstreymi sem gerði því kleift að létta á skuldsetningu. Innherji 8.2.2024 16:52
Hagnaður Arion yfir væntingum en mjög farið að hægja á útlánavexti Hagnaður Arion banka á fjórða ársfjórðungi var nokkuð yfir væntingum greinenda, en ekki kom til virðsrýrnunar útlána eins og reiknað var með. Bankastjóri Arion segir viðskiptamódel bankans, að leggja áherslu á þóknanatekjur, hafi sannað sig á tímum þegar hægir á útlánavexti. Innherji 8.2.2024 12:48
Krefjandi markaðsaðstæður setji áfram mark sitt á afkomu Marels Horfur eru á að krefjandi markaðsaðstæður muni áfram setja mark sitt á afkomu Marel. Greinendur búast almennt við því að afkoma fyrirtækisins muni dragast saman á milli ára á fjórða ársfjórðungi og að framlegðarhlutfall verði rétt undir tíu prósentum. Marel mun birta uppgjör eftir lokun markaða á morgun. Innherji 6.2.2024 12:35
Nýr forstjóri Reita fór fyrir 200 milljarða banka í Katar Guðni Aðalsteinsson, fyrrverandi forstjóri þriðja stærsta viðskiptabanka Katar, hefur verið ráðinn forstjóri Reita. Markaðsvirði bankans er yfir 200 milljarðar króna en til samanburðar er markaðsvirði Reita um 65 milljarðar króna. Guðni hefur á ferli sínum gegnt fjölbreyttum stjórnunarstöðum á Íslandi, Englandi, Þýskalandi og Katar. Innherji 5.2.2024 10:25
Arion freistar þess að selja um tíu prósenta hlut bankans í Eyri Invest Arion leitar nú að áhugasömum fjárfestum til að kaupa allan eignarhlut bankans í Eyri Invest en fjárfestingafélagið er langsamlega stærsti hluthafi Marel sem á núna í formlegum viðræðum um samruna við John Bean Technologies. Þrír mánuðir eru síðan Arion leysti til sín samanlagt nálægt tíu prósenta hlut sem var áður í eigu feðganna Árna Odds Þórðarson, þáverandi forstjóra Marel, og Þórðar Magnússonar, fyrrverandi stjórnarformanns Eyris í meira en tvo áratugi, en Árni Oddur leitar nú leiða til að komast að nýju yfir þau bréf í gegnum nýtt fjárfestingafélag sem hann fer fyrir. Innherji 4.2.2024 14:16
„Enginn barlómur“ en án Marels tefst uppfærsla hjá MSCI Fari svo að bandaríska fyrirtækið John Bean Technologies (JBT) kaupi Marel mun það tefja ferlið við að komast upp um flokk hjá vísitölufyrirtækinu MSCI. „Það er enginn barlómur í okkur. Við erum áfram í dauðafæri en þetta tefur að líkindum verkefnið eilítið,“ segir forstjóri Kauphallarinnar. Innherji 2.2.2024 10:21
„Það er mikilvægur áfangi að skila hagnaði“ Icelandair hagnaðist um 1,5 milljarð í fyrra, eftir skatta, sem er töluverð breyting frá árinu áður þegar félagið tapaði 800 milljónum. Eldgos og jarðhræringar höfðu mikil áhrif á rekstur félagsins á fjórða ársfjórðungi. Alls ferðuðust þó 4,3 milljónir farþega með þeim í fyrra sem er aukning um 17 prósent frá árinu á undan. Viðskipti innlent 1.2.2024 21:23
Sótti yfir tvo milljarða frá fjárfestum og greiddi upp skuldir við Landsbankann Árni Oddur Þórðarson, fyrrverandi forstjóri Marel til tíu ára, hefur klárað fjármögnun upp á vel yfir tvo milljarða króna frá hópi einkafjárfesta og um leið gert upp skuldir sínar við Landsbankann. Hann verður með minnihluta í nýju fjárfestingafélagi sem heldur utan um stóran hlut í Eyri Invest. Innherji 30.1.2024 14:38
Hagnaður Össurar nam um átta milljörðum króna á síðasta ári Tekjur Össurar á fjórða ársfjórðungi 2023 námu 210 milljónum Bandaríkjadala, eða 29,2 milljörðum íslenskra króna, sem samsvarar níu prósenta innri vexti. Tekjur á nýliðnu áru námu því 786 milljónum Bandaríkjadala, eða 109,1 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti innlent 30.1.2024 07:44
Hlutabréfamarkaðurinn er í meira jafnvægi og „ekki allt á kostakjörum“ Hlutabréfamarkaðurinn er í meira jafnvægi en í lok október þegar hann var „nærri lágmarki“ en frá þeim tíma hefur hann hækkað nær linnulaust. „Það er ekki allt á kostakjörum á markaðnum lengur líkt og var fyrir um þremur mánuðum síðan,“ að mati hlutabréfagreinenda, en fyrirtæki á markaði voru þá vanmetin um tæp 37 prósent en nú er hlutfallið um 16 prósent. Innherji 29.1.2024 15:09
Mælir nú með kaupum í Alvotech og hækkar verðmatið um 70 prósent Alþjóðlegi fjárfestingabankinn Barclays mælir með því að fjárfestar bæti við sig í Alvotech, áður ráðlagði hann þeim að halda stöðu sinni, og hækkar verulega verðmatsgengi sitt á íslenska líftæknilyfjafélagið eftir að ljóst varð að það á von á því að fá samþykkt markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf. Fjárfestar eru nú með meiri vissu um að sá fjöldi lyfja sem eru í þróun hjá Alvotech fari að skila tekjum, að sögn Barclays, sem telur félagið verða með sterka samkeppnisstöðu á markaði vestanhafs með hliðstæðu við gigtarlyfið Humira. Innherji 29.1.2024 12:30
Fjármagn flæddi í hlutabréfasjóði á síðasta mánuði ársins Eftir nánast samfellt útflæði úr hlutabréfasjóðum um langt skeið varð viðsnúningur á síðasta mánuði ársins 2023 þegar fjárfestar settu talsvert fjármagn í slíka sjóði samhliða því að hlutabréfamarkaðurinn fór á mikið flug. Á sama tíma var hins vegar ekkert lát á áframhaldandi sölu fjárfesta í blönduðum sjóðum og skuldabréfasjóðum. Innherji 29.1.2024 10:37
IFS verðmetur Alvotech 47 prósentum hærra en markaðurinn IFS greining verðmetur gengi Alvotech 47 prósentum yfir markaðsverði. Fái fyrirtækið markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir hliðstæðu af líftæknilyfinu Humira, sem er gigtarlyf, í febrúar hækkar verðmatið þannig að það verður næstum tvöfalt hærra en markaðsvirðið er um þessar mundir. „Líftæknilyfjamarkaðurinn hefur farið ört vaxandi, í raun allt frá upphafi, sem gerir markað fyrir hliðstæðulyf einnig mjög spennandi og eftirsóknarverðan.“ Innherji 26.1.2024 13:44
Von á nokkrum nýskráningum í ár ef það verður áfram stemning á markaði Framkvæmdastjóri hjá Kauphöllinni á von á því að nokkur ný félög muni bætast við hlutabréfamaraðinn í ár en veigamikil atriði í umhverfinu sem skipta máli hvað það varðar hafa verið að þróast til betri vegar. „Við höfum orðið vör við talsverðan áhuga á skráningum. Þetta gæti orðið nokkuð spennandi ár ef verðlagning helst hagstæð og það verður áfram góð stemning á markaðnum.“ Innherji 25.1.2024 11:31
Félag Róberts seldi breytanleg bréf á Alvotech fyrir um milljarð Fjárfestingafélag í aðaleigu Róbers Wessman, stofnanda og forstjóra Alvotech, seldi í síðustu viku, daginn áður en Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna lauk úttekt sinni á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins, breytanleg skuldabréf á líftæknilyfjafélagið fyrir tæplega einn milljarð króna. Bréfin voru seld með tugprósenta hagnaði frá því að þau voru keypt í lok júlí í fyrra. Innherji 24.1.2024 20:17
Sameining við Samkaup gæti „hrist upp“ í smásölumarkaðnum Mögulegur samruni Orkunnar og Heimkaupa við Samkaup, sem er sagður vera rökréttur, gæti „hrist nokkuð upp í smásölumarkaðnum“ og ljóst að sameinað félag yrði nægjanlega stórt til að eiga erindi á Aðalmarkað í Kauphöllinni, að mati greinenda. Á meðan risarnir á markaði, Hagar og Festi, eru að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða sem eru ekki ýkja virkir í stjórnun félaganna eru hluthafar Skel fjárfestingafélags, sem á Orkuna og Heimkaup, líklega „meira öskrandi á hliðarlínunni.“ Innherji 23.1.2024 13:59
Samruni Marels og JBT er skynsamlegur en áhætta felst í samþættingu Samruni Marels og John Bean Technologies (JBT) er skynsamlegur og getur skapað verulegt virði fyrir hluthafa til langs tíma. Samþætting fyrirtækjanna er þó áhættuþáttur, einkum í ljósi rekstrarvanda sem Marel hefur glímt við að undanförnu, segir í greiningu bandaríska fjármálafyrirtækisins Baird. Innherji 22.1.2024 14:32
Alvotech lyftir upp öllum markaðnum nú þegar samþykki FDA er nánast í höfn Markaðsvirði Alvotech, ásamt nær öllum félögum í Kauphöllinni, hefur rokið upp um nærri hundrað milljarða króna á markaði sem af er degi eftir að ljóst varð að íslenska líftæknilyfjafélagið ætti von á því að fá samþykkt markaðsleyfi fyrir sín stærstu lyf í Bandaríkjunum. Útlit er fyrir að Alvotech verði í talsverðan tíma einir á markaði vestanhafs með hliðstæðu við gigtarlyfið Humira, eitt mesta selda lyf í heimi, sem hefur þá eiginleika sem söluaðilar þar í landi horfa einkum til. Innherji 22.1.2024 12:15
Alvotech leiðir hækkanir í Kauphöllinni Gengi allra félaga í Kauphöllinni hafa hækkað það sem af er morgni og hefur gengi bréfa í Alvotech hækkað mest, eða um tæplega 17 prósent, í um 2,6 milljarða króna viðskiptum. Viðskipti innlent 22.1.2024 11:18
ING telur að samningur JBT um yfirtöku á Marel sé í höfn Greinendur hollenska bankans ING telja að líkur á samruna Marels við John Bean Technologies (JBT) hafi aukist verulega með nýju tilboði og að samningur sé í höfn. Fjárfestingabankinn JP Morgan bendir hins vega á að 90 prósent hluthafa Marels þurfi að samþykkja tilboðið og það gæti gert samruna vandasamri. Innherji 19.1.2024 15:49
Hækka enn tilboð sitt í Marel og reikna með um 20 milljarða kostnaðarsamlegð Stjórn Marel hefur fallist á að hefja formlegar viðræður um samruna við John Bean Technologies, sem það telur „góð rök“ fyrir, eftir að bandaríska félagið kom með uppfært og hærra verðtilboð. Greinandi Citi telur líklegt að viðskiptin gangi eftir og hlutabréfaverð Marel, ásamt öðrum félögum á markaði, hefur rokið upp en stjórnendur JBT telja að sameining félaganna geti skilað sér í kostnaðarsamlegð upp á meira en 125 milljónir Bandaríkjdala. Innherji 19.1.2024 10:41
JBT uppfærir mögulegt tilboð í öll hlutabréf Marels Matvælatæknifyrirtækið John Bean Technologies Corporation hefur sent Marel uppfærða óskuldbindandi viljayfirlýsingu varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í félaginu á verðinu 3,60 evrur á hlut. Stjórnarformaður Marel segir góð rök fyrir sameiningu félaganna. Viðskipti innlent 19.1.2024 08:51
Rauðar tölur eftir hikst í kjaraviðræðum Gengi langflestra félaga í Kauphöllinni lækkaði í fyrstu viðskiptum dagsins. Telja má líklegt að tíðindum af erfiðleikum í kjaraviðræðum sé um að kenna. Viðskipti innlent 18.1.2024 10:27
Virkir sjóðstjórar lutu í lægra hald fyrir vísitölum í krefjandi aðstæðum Að baki er krefjandi ár fyrir stjórnendur hlutabréfasjóða í virkri stýringu. Slíkir sjóðir, fyrir utan einn, skiluðu lakari ávöxtun fyrir sjóðsfélaga sína í samanburði við Úrvalsvísitöluna. Kjarna má árið 2023 fyrir sjóðstjóra að landslagið hafi breyst nokkuð oft með fjölda stórra atburða og ýktum sveiflum á stöku hlutabréfum og markaðnum í heild. Innherji 17.1.2024 06:01
Hlutabréfasjóðir með mikið undir í Alvotech í aðdraganda ákvörðunar FDA Mikill meirihluti hlutabréfasjóða landsins, sem eru að stórum hluta fjármagnaðir af almenningi, er með hlutabréfaeign í Alvotech sem annaðhvort sína stærstu eða næstu stærstu eign núna þegar örfáar vikur eru í að niðurstaða fæst um hvort félagið fái samþykkt markaðsleyfi fyrir sitt helsta lyf í Bandaríkjunum. Hlutabréfaverð líftæknilyfjafyrirtækisins hefur rokið upp á síðustu vikum, meðal annars byggt á væntingum um að Alvotech muni loksins fá grænt ljóst frá Lyfjaeftirliti Bandaríkjanna. Innherji 16.1.2024 15:22
Telur óvíst með samruna við JBT og mælir ekki lengur með kaupum í Marel Bandaríski stórbankinn Citi ráðleggur fjárfestum ekki lengur að bæta við sig í Marel samkvæmt nýju verðmati, heldur að halda í bréfin, og telur sennilegt að íslenskir lífeyrissjóðir verði tregir til að samþykkja mögulegt tilboð John Bean Technologies (JBT) í allt hlutafé Marel. Stjórnendur JBT hafa nú aðeins þrjá daga til stefnu til að lýsa því yfir hvort félagið hyggist gera formlegt yfirtökutilboð í Marel. Innherji 16.1.2024 11:21
Lyfjarisar keppast um að kaupa líftæknifyrirtæki Stærstu lyfjafyrirtæki í heimi keppast um að kaupa líftæknifyrirtæki til að efla framleiðslu sína. Stjórnendur lyfjaframleiðenda vilja hafa hraða hendur því einkaréttur á allt að 170 lyfjum mun falla úr gildi við upphaf næsta áratugar sem standa undir næstum 400 milljarða Bandaríkjadala í tekjum fyrir stærstu fyrirtækin. Innherji 12.1.2024 16:10
Gæti vantað „einhverjar vörur í hillur“ Haga vegna afstöðu gegn verðhækkunum Forstjóri Haga sagði að í verslunum samstæðunnar verði tekin afgerandi afstaða gegn verðhækkunum sem teljist umfram það sem innistæða væri fyrir eða ógni samningsmarkmiðum komandi kjarasamninga. „Það er mögulegt að það muni vanta einhverjar vörur í hillur sem fólk er vant að geta gengið að; það væri einfaldlega vegna þess að okkar mati hafa þær hækkað of mikið.“ Innherji 12.1.2024 13:53