Kauphöllin
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 78 ›
Hagræðing í rekstri hjá Íslandsbanka gerir hann 25-30 prósent verðmætari Sú hagræðing sem hefur átt sér stað hjá Íslandsbanka á undanförnum árum jafngildir því að vaxtamunur hafi aukist um 0,5 prósentustig. Hún hefur aukið verðgildi bankans um 25 til 30 prósent, samkvæmt nýju verðmati. Innherji 22.2.2023 17:00
Stærsti erlendi fjárfestirinn selur í ISB fyrir nærri þrjá milljarða Bandaríski sjóðastýringarrisinn Capital Group, sem hefur verið stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Íslandsbanka frá skráningu á markað sumarið 2021, hefur minnkað hlut sinn í bankanum um meira en fimmtung í þessum mánuði. Sala félagsins kemur í kjölfar þess að tilkynnt var um samrunaviðræður Íslandsbanka og Kviku. Innherji 21.2.2023 10:10
Skiptir stærðin máli? Það hentar ekki öllum fyrirtækjum að vera almenningshlutafélög. En stærð og kostnaður eru yfirleitt ekki sá þröskuldur sem af er látið. Umræðan 17.2.2023 10:00
Forstjóri Regins segir upp Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, hefur óskað eftir því að láta af störfum á næstu mánuðum. Hann hefur gegnt stöðu forstjóra síðan árið 2009. Viðskipti innlent 16.2.2023 17:54
Alvotech orðið ein stærsta eignin hjá helstu hlutabréfasjóðum landsins Vægi Alvotech í eignasöfnum stærstu hlutabréfasjóða landsins hefur aukist verulega á fáum vikum samtímis miklum verðhækkunum á gengi bréfa íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins og þátttöku sjóðanna í nýafstöðnu hlutafjárútboði. Úttekt Innherja sýnir að félagið er orðið stærsta eða næststærsta eignin hjá meirihluta sjóðanna. Innherji 16.2.2023 15:54
Kvika muni sjá til lands í samrunaviðræðum við Íslandsbanka „fyrr en seinna“ Hagnaður Kviku á fjórða ársfjórðungi eftir skatt minnkaði um rúmlega milljarð króna á fjórða ársfjórðungi og nam 1.613 milljónum sem skilaði sér í arðsemi á efnislegt eigið fé upp á 15,3 prósent. Afkoman litaðist af einskiptiskostnaði en forstjóri Kviku segir rekstur fjórðungsins hafa verið þann besta á liðnu ári og hann býst við að niðurstaða muni fást í viðræðum bankans um mögulegan samruna við Íslandsbanka innan ekki of langs tíma. Innherji 16.2.2023 08:20
Rekstrarhagnaður Sýnar tvöfaldast og spáð enn meiri afkomubata í ár Rekstrarhagnaður Sýnar á fjórða ársfjórðungi nam 383 milljónum á sama tíma og félagið gjaldfærði einskiptiskostnað upp á 150 milljónir vegna hagræðingaraðgerða undir lok síðasta árs. Samkvæmt fyrstu afkomuspá sem Sýn hefur gefið út undanfarin ár þá er gert ráð fyrir að rekstrarhagnaður (EBIT) félagsins á árinu 2023 verði á bilinu 2,2 til 2,5 milljarðar króna. Innherji 15.2.2023 18:31
Aðdragandinn að kaupum VÍS á Fossum „var stuttur“ VÍS ítrekaði áhuga sinn á að útvíkka starfsemi félagsins á fjármálamarkaði og vaxa á þeim vettvangi í tilkynningu til Kauphallarinnar í janúar. Eftir það fór boltinn að rúlla. Í morgun var tilkynnt um möguleg kaup VÍS á Fossum fjárfestingabanka. Þetta segir Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður VÍS, segir í samtali við Innherja. Innherji 15.2.2023 17:05
Play tapaði 6,5 milljörðum króna Heildartap flugfélagsins Play árið 2022 nemur 6,5 milljörðum króna. Tap sem má rekja til ófærðar á Reykjanesbrautinni í desember er metið á 317 milljónir króna. Heildarfjöldi farþega árið 2022 var 789 þúsund og vonast flugfélagið eftir því að tvöfalda þann fjölda á næsta ári. Viðskipti innlent 15.2.2023 15:53
Bein útsending: Árshlutauppgjör Play kynnt Flugfélagið Play mun kynna uppgjör sitt á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 16:15. Viðskipti innlent 15.2.2023 15:45
Yfirvofandi verkfallsátök auka enn á óvissuna á mörkuðum Áhyggjur fjárfesta af mögulega langvinnari verkfallsátökum á vinnumarkaði en áður var talið setti mark sitt á þróun markaða í dag. Hlutabréfaverð flestra félaga lækkaði, mest í tilfelli Icelandair, og verðbólguálagið á skuldabréfamarkaði hækkaði sömuleiðis. Innherji 14.2.2023 18:48
Moody's íhugar að hækka lánshæfismat Kviku í ljósi samrunaviðræðna Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody's tilkynnti í dag að formlega hefði verið tekið til skoðunar að hækka lánshæfismat Kviku í kjölfar þess að ákveðið hefur verið að hefja viðræður um samruna Kviku og Íslandsbanka. Innherji 13.2.2023 12:21
Stóru sjóðirnir stækkuðu stöðu sína í Marel fyrir á annan tug milljarða Stærstu íslensku lífeyrissjóðirnir, einkum Gildi, juku nokkuð við hlutabréfastöðu sína í Marel á árinu 2022 samhliða því að hlutabréfaverð félagsins gaf mikið þegar það þurfti að glíma við brostnar aðfangakeðjur og hækkandi afurðaverð sem kom mikið niður á afkomu þess. Staðan hefur núna snúist við og útlit fyrir að Marel nái rekstrarmarkmiðum sínum fyrr en áður var talið en gengi bréfa félagsins hefur hækkað um 22 prósent frá áramótum. Innherji 13.2.2023 07:00
Alvotech tekið inn í vísitölu MSCI fyrir vaxtarmarkaði Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech, verðmætasta félagið í Kauphöllinni, verður tekið inn í vísitölu MSCI fyrir vaxtarmarkaði frá og með næstkomandi mánaðarmótum. Það ætti að hafa í för með sér aukna fjárfestingu frá erlendum vísitölusjóðum en Alvotech bíður þess nú sömuleiðis að vera bætt við nýmarkaðsvísitöluna hjá FTSE Russell. Innherji 12.2.2023 14:18
Ætti ekki að undrast að erlendir fjárfestar hafi bætt við sig í Icelandair Gengi flugfélaga hefur hækkað „gríðarlega mikið“ að undanförnu. Algegnt er að félög hafi hækkað um 30 til 40 prósent frá áramótum. Má nefna Icelandair, Finnair, Air France, Lufthansa og Ryanair sem dæmi. EasyJet, WizzAir og American Airlines hafa hækkað um nærri 50 prósent á sama tíma. „Það skildi engan undra að erlendir fjárfestar hafa verið að auka vægi sitt í Icelandair.“ Innherji 10.2.2023 17:16
Samruni bankanna hefði „mikil samlegðaráhrif á kostnaðarhliðinni“ Bankastjóri Íslandsbanka segir að samruni við Kviku sé „áhugavert tækifæri“ og myndi meðal annars hafa „mikil samlegðaráhrif á kostnaðarhliðinni“. Verði af sameiningu bankanna er gert ráð fyrir því að viðskiptin færu fram að öllu leyti með skiptum á hlutabréfum, fremur en að hluta með greiðslu reiðufjár. Innherji 10.2.2023 10:48
Stóru samlegðartækifærin á bankamarkaði liggja í gegnum Kviku Útlit er fyrir frekari samruna á fjármálamarkaði þar sem stjórnendur keppast við að leita leiða til hagræðingar á tímum hækkandi launakostnaðar og erfiðari markaðsaðstæðna. Sum af stærri fjármálafyrirtækjum landsins hafa að undanförnu mátað sig við hvort annað sem hefur nú leitt til þess stjórn að Íslandsbanka, sem fundar á morgun, mun væntanlega samþykkja ósk Kviku banka um að hefja samrunaviðræður milli félaganna. Óformlegt samtal um að sameina Kviku og Arion banka, sem margir höfðu spáð fyrir um, skiluðu ekki árangri en blessun frá Samkeppniseftirlitinu við slíkum bankasamruna gæti reynst þrautin þyngri. Innherji 8.2.2023 06:00
Uppgjör Icelandair bendir til að „flugið er komið til baka“ Rekstur Icelandair á árinu 2022 var ótrúlegur þegar litið er til hversu mikið farþegum flugfélagsins fjölgaði á milli ára og hvernig til tókst að „skala upp reksturinn“ til að mæta aukinni á eftirspurn, segir hlutabréfagreinandi IFS. Erlendir hluthafar eiga samanlagt 26 prósenta hlut í Icelandair, að sögn forstjóra Icelandair. Innherji 6.2.2023 15:31
Samruni myndi styrkja lánshæfi bæði Kviku og Íslandsbanka, segir Moody´s Verði af samruna Kviku og Íslandsbanka þá mun það hafa jákvæð áhrif á lánshæfi beggja bankanna. Kvika myndi verða hluti af mun stærri bankaeiningu, sem ætti að draga meðal annars úr rekstraráhættu, og fyrir Íslandsbanka yrði það til þess fallið að breikka enn frekar tekjustrauma bankans, að mati alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækisins Moody´s. Innherji 4.2.2023 15:54
Sameiningin minnir á samruna Kaupþings og Búnaðarbanka sem gekk vel Hlutabréfagreinandi IFS segir að mögulegur samruni Kviku og Íslandsbanka minni á samruna Kaupþings og Búnaðarbanka árið 2003. Sá samruni hafi heppnast vel. Að hans mati eru samlegðartækifærin við sameininguna augljós. Líkur á að af samrunanum verði séu nokkuð góðar. Innherji 3.2.2023 13:59
Bréf bankanna hækka um fimm prósent fyrir áformaðar samrunaviðræður Umtalsverð utanþingsviðskipti voru með hlutabréf allra bankanna í Kauphöllinni eftir lokun markaða í gær í kjölfar þess að Kvika sagðist hafa óskað eftir því að hefja samrunaviðræður við Íslandsbanka. Hlutabréfaverð Kviku og Íslandsbanka í þeim viðskiptum var allt að um fimm prósentum hærra en það stóð í gær. Innherji 3.2.2023 09:30
Kvika óskar eftir samrunaviðræðum við Íslandsbanka Stjórn Kviku hefur óskað eftir því við stjórn Íslandsbanka að hefja samrunaviðræður milli félaganna. Sameiginlegt markaðsvirði félaganna er rúmlega 320 milljarðar. Innherji 2.2.2023 16:34
Sautján milljarða hagnaður Landsbankans á krefjandi ári Landsbankinn hagnaðist um sautján milljarða á síðasta ári. Bankaráð bankans hyggst leggja til að greiddur verði 8,5 milljarðar í arð til eigenda bankans vegna reksturs síðasta árs. Bankastjóri bankans segir árið hafa verið krefjandi. Viðskipti innlent 2.2.2023 13:56
Hvort er betra að kaupa vöxt eða virði? Fjárfesting í virðisfyrirtækjum hefur í gegnum tíðina verið talin öruggari og áreiðanlegri leið til að ávaxta fjármagn fremur en fjárfesting í vaxtafyrirtækjum. Vaxtarfyrirtæki eru venjulega hlutabréf fyrirtækja sem búist er við að muni vaxa hratt í náinni framtíð en slíkt mat er alltaf óvissu háð. Framtíðin verður aldrei eins og búist er við. Umræðan 1.2.2023 08:01
Fjárfestar seldu í hlutabréfasjóðum fyrir um átta milljarða í fyrra Erfitt árferði á hlutabréfamörkuðum á liðnu ári, sem einkenndist af miklum verðlækkunum samtímis hækkandi verðbólgu og vaxtahækkunum, varð þess valdandi að fjárfestar minnkuðu stöðu sína í innlendum hlutabréfasjóðum fyrir samtals tæplega átta milljarða króna. Eru það talsverð umskipti frá árunum 2020 og 2021 þegar slíkir sjóðir bólgnuðu út samhliða innflæði og hækkandi gengi hlutabréfa. Innherji 30.1.2023 07:00
Telur virði Ölgerðarinnar þriðjungi yfir markaðsverði Hlutabréf Ölgerðarinnar eru undirverðlögð á markaði ef marka má nýtt verðmat Jakobsson Capital. Aukin framlegð mitt í hrávöruverðshækkunum er helst talin skýrast af stóraukinni sölu og hótela og veitingastaða. Innherji 25.1.2023 14:03
„Light“ útgáfa af upplýsingaskyldu skráðra félaga í nýrri tillögu ESB Ef tillaga framkvæmdastjórnar ESB verður samþykkt hvað varðar upplýsingaskyldu skráðra félaga liggur fyrir að innleiða þurfi breytinguna í íslenskan rétt. Slíkt myndi hafa í för með sér að skráð félög þyrftu ekki að lengur að birta innherjaupplýsingar opinberlega fyrr en þær verða endanlegar. Tillagan myndi því létta töluvert á kröfum til skráðra félaga á Íslandi og annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu um að birta innherjaupplýsingar. Umræðan 25.1.2023 10:01
Íslenskir fjárfestar komnir með um fimmtíu milljarða hlutabréfastöðu í Alvotech Íslenskir fjárfestar, einkum verðbréfasjóðir, fjárfestingafélög og efnameiri einstaklingar, áttu í byrjun þessa árs hlutabréf í líftæknilyfjafyrirtækinu Alvotech fyrir að lágmarki um tuttugu milljarða króna miðað við núverandi gengi. Sú fjárhæð hefur núna tvöfaldast eftir nýafstaðið hlutafjárútboð félagsins en á meðal nýrra fjárfesta sem bættust þá í hluthafahópinn var lífeyrissjóðurinn Birta sem keypti fyrir tvo milljarða. Innherji 24.1.2023 13:45
Íslenskir fjárfestar leggja Alvotech til um tuttugu milljarða króna Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech, verðmætasta félagið í Kauphöllinni, hefur klárað lokað hlutafjárútboð sem var beint að innlendum fjárfestum fyrir jafnvirði um 19,6 milljarða króna, en tæplega þriðjungur þeirrar upphæðar kemur frá lífeyrissjóðum. Forstjóri Alvotech segir „mjög ólíklegt“ að bandaríska lyfjaeftirlitið muni koma með þannig athugasemdir í endurúttekt sinni á verksmiðju félagsins að einhverjar tafir verði á að það fái samþykkt markaðsleyfi vestanhafs 1. júlí næstkomandi fyrir sitt stærsta lyf. Innherji 23.1.2023 08:26
Alvotech leitar til innlendra fjárfesta eftir auknu hlutafé Rúmum einum mánuði eftir að Alvotech, verðmætasta félagið í Kauphöllinni, kláraði útgáfu á breytanlegum skuldabréfum fyrir jafnvirði um tíu milljarða króna vinnur líftæknilyfjafyrirtækið núna að því að sækja sér umtalsverða fjárhæð í aukið hlutafé til að treysta fjárhaginn. Félagið hóf markaðsþreifingar við innlenda fjárfesta fyrr í dag, samkvæmt heimildum Innherja, en stefnt er að því að klára útboðið fyrir opnun markaða á mánudag. Innherji 20.1.2023 16:44