Valið „Jólahús Kópavogsbæjar 2022“ Atli Ísleifsson skrifar 16. desember 2022 11:37 Jólaljósin á Múlalind 2 eru birtustýrð þannig að þau kvikna þegar fer að rökkva og eru kveikt þar til birtir á ný. Kópavogsbær Múlalind 2 hefur verið valið jólahús Kópavogsbæjar árið 2022 af lista- og menningaráði Kópavogsbæjar.
Í tilkynningu frá bænum segir að þetta sé í fyrsta sinn sem valið sé jólahús í Kópavogi og hafi verið óskað eftir tilnefningum fyrr í mánuðinum. Helgi Reimarsson og Þorbjörg Guðnadóttir Blandon eru eigendur hússins og hafa þau um árabil lagt metnað í að skreyta húsið sitt fallega. „Það er virkilega gaman húsið okkar sé fyrsta jólahús bæjarins,“ segir Helgi. Kópavogsbær „Við tökum þetta í skrefum, þetta eru ein til tvær helgar sem tekur að setja ljósin upp og við njótum við það liðsinnis eldri barnanna okkar. Svo kemur fjölskyldan öll saman í upphafi aðventu og fylgist með þegar við kveikjum á ljósunum, öllum í einu. Þetta er mikil jólastemning fyrir okkur öll og ekki síst barnabörnin,“ segir Helgi. Jólaljósin á Múlalind 2 eru birtustýrð þannig að þau kvikna þegar fer að rökkva og eru kveikt þar til birtir á ný. Kópavogsbær Í tilkynningunni segir að góðar undirtektir hafi verið hjá íbúum Kópavogs við þeirri nýbreytni að óska eftir ábendingum um jólaleg hús og hafi fjöldi tilnefninga borist. „Það var virkilega gaman að fara um bæinn og skoða hversu fallega hann er skreyttur og jólalegur. Kópavogur er mikill jólabær,“ er haft eftir Elísabetu Sveinsdóttur, formanni lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar.
Kópavogur Jólaskraut Mest lesið „Gestirnir, þeir koma í raun og veru með jólin til mín“ Jól Æðisleg jólaterta með rjómaostakremi Jól Jólamolar: Stjórnlaus þegar kemur að möndlugrautnum Jól Ekki víst að Grýla og Leppalúði séu í áhættuhóp Jól Jóladagatal - 3. desember - Sultukrukkum breytt í snjókúlur Jól Katrín Halldóra syngur Ó, helga nótt Jól Jólakótilettur úr sveitinni Jól Kertasníkir sá eini sem gefur Rakel enn í skóinn Jól Tóta og Siggi koma öllum í jólaskap Jól Jólamolar: Man alltaf eftir því þegar hann fékk trönur í jólagjöf Jól