Bílar

Volvo sýnir XC Coupe í Detroit

Finnur Thorlacius skrifar
Volvo stal senunni með tilraunabílnum Volvo Concept Coupe á bílasýningunni í Frankfurt fyrr á árinu og vonandi fer sá bíll í framleiðslu sem líkastur honum. Hann var af mörgum kjörinn fallegasti nýi bíll sýningarinnar.

Volvo Concept Coupe er stór fólksbíll, en á næstu bílasýningu, sem hefst í Detroit í Bandaríkjunum 13. janúar ætlar Volvo að sýna nýjan tilraunabíl sem virðist liggja á milli hins nýja XC90 jeppa og Concept Coupe bílnum. Sem afkvæmi þeirra beggja má kalla þennan bíl jeppling.

Hann virðist nokkuð spennandi bíll í útliti ef marka má myndskeiðið sem hér fylgir og Volvo hefur opinberað til að vekja athygli á bílnum. Ekki fylgir sögunni hvað verður undir húddinu á þessum bíl, en það kemur í ljós í Detroit í næsta mánuði. 






×