Bílar

Renault í samstarf með Dongfeng í Kína

Finnur Thorlacius skrifar
Renault Koleos jepplingurinn.
Renault Koleos jepplingurinn.
Franski bílaframleiðandinn Renault mun framleiða 150.000 bíla á ári í samstarfi við kínverska bílaframleiðandann Dongfeng í Kína. Renault segist reyndar hafa myndað „gullinn þríhyrning“  með þessu samstarfi því Nissan, sem lengi hefur verið í samstarfi með Renault, er þriðji aðili samstarfsins.

Renault og Dongfeng munu sameinast um verksmiðju og fyrstu bílarnir með merki Renault munu renna af færiböndunum á miðju ári 2016. Renault er langt á eftir Volkswagen, Toyota og General Motors í sölu bíla í Kína og hyggst með þessu minnka það bil á þessum stærsta bílamarkaði heims. Renault ætlar aðallega að framleiða jepplinga í verksmiðjunni í Kína.

Franskir bílaframleiðendur eiga afar lítinn hluta af bílamarkaðinum í Kína, eða 3,1% og eru langt á eftir þýsku framleiðendunum,  sem og þeim japönsku, bandarísku og s-kóresku. Erfitt gæti reynst fyrir Renault að vinna markað í Kína, en merki Renault er ekki mjög þekkt þar. Auk þess kemur Renault nú inn á markaðinn þegar verulega er farið að hægja á vexti í bílasölu í Kína.  






×