Margt leynist í mixinu Trausti Júlíusson skrifar 13. ágúst 2012 14:00 Beatmakin Troopa.
Tónlist. If You Fall You Fly. Beatmakin Troopa. Extreme Chill. Beatmakin Troopa er listamannsnafn Pans Thorarensen sem hefur verið áberandi á íslensku raftónlistarsenunni undanfarin ár. If You Fall You Fly er fimmta platan hans undir því nafni, en að auki er Pan annar helmingur dúósins Stereo Hypnosis og einn af forsvarsmönnum Extreme Chill-hópsins sem hefur verið duglegur við tónleikahald í borginni, auk þess að halda samnefnda tónlistarhátíð á ári hverju á Hellissandi. If You Fall You Fly er jafnframt fyrsta platan sem Extreme Chill gefur út. Tónlist Beatmakin Troopa er hæggeng og stemningarfull instrúmental-tónlist. Aðaláherslan er á að búa til góðan grunn og hlaða svo ofan á hann flottum hljóðum, hljóðheimurinn skiptir ekki síður máli en lagasmíðarnar sjálfar. Troopa hefur lengi verið mjög fær í þessari iðju og sýnir það enn og aftur á nýju plötunni sem hann vann í samstarfi við Þorkel Atlason poppara, tónskáld og tilraunatónlistarmann. Það eru fimm lög á If You Fall You Fly og maður heyrir vel að þeir félagar Troopa og Þorkell hafa legið yfir hverju hljóði. Þetta er býsna góð plata. Hún er ekki beint frumleg eða framsækin, en stendur samt vel fyrir sínu. Hljómburðurinn er líka mjög góður og það leynast mörg flott hljóð í mixinu þegar vel er hlustað. Á heildina litið enn ein fín plata frá Beatmakin Troopa. Niðurstaða: Fimmta plata Beatmakin Troopa er í anda fyrri verka
Mest lesið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Menning Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Hyggjast halda breytta Söngvakeppni á næsta ári Lífið Eignaðist alvöru pungsa með alvöru pungsa Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Tónlist „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Fleiri fréttir Maður þurfti ekki að vera skyggn Melódrama, morð og hæfilega mikið bótox Sunna Gunnlaugs í skugga karlrembu á djasshátíð Alien Romulus: Ungmenna Alien May December: Seint koma sumir en koma þó Sjá meira