Viðskipti erlent

Milljarður snjallsíma seldur árið 2015

Milljarður snjallsíma verður seldur árið 2015.
Milljarður snjallsíma verður seldur árið 2015. mynd/AFP
Bandaríska greiningarfyrirtækið Gartner áætlar að milljarður snjallsíma verði seldur árið 2015 og að 350 milljón spjaldtölvur verði í umferð á þeim tíma.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Gartners frá því í gær. Síðustu ár hefur fyrirtækið fylgst með og rannsakað þróun mála í tæknigeiranum.

Samkvæmt Gartner er afar ólíklegt að það muni draga úr vinsældum PC-tölvunnar, sem í dag er vinsælasta raftæki veraldar. Stórsókn snjallsíma og spjaldtölva undanfarið kemur þó til með að hafa áhrif á velgengni borð- og fartölvunnar.

Samskiptamiðlar leika stórt hlutverk á uppgangstímum snjallsímans.mynd/AP
Samskiptamiðlar leika stórt hlutverk á uppgangstímum snjallsímans. Í tilkynningu Gartners kemur fram að aðeins 15 prósent nota snjallsíma til að heimsækja samskiptamiðla á borð til Facebook og Twitter. Þessi tala kemur þó til með að hækka gríðarlega á næstu árum.

Vinsældir Facebook og Twitter munu halda áfram að aukast samkvæmt Gartner. Því fer þó fjarri að miðlarnir tveir muni ráða lögum og lofum. Miðlar á borð við Instagram, FourSquare, Path og Mocospace, munu auka markaðshlutdeild sína verulega.

Gartner gerir ráð fyrir að um einn milljarður manna muni nota samskiptamiðla með hjálp snjallsíma eða spjaldtölva fyrir árið 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×