Viðskipti erlent

Slagsmál og ólæti hjá Foxconn

Iphone.
Iphone.
Fyrirtækið Foxconn, sem framleiðir m.a. iphone síma fyrir hugbúnaðarrisann Apple, þurfti í morgun að stöðvar framleiðslu í einni af verksmiðjum sínum vegna slagsmála sem brutust út meðal starfsmanna. Mikið álag er á starfsmönnum vegna hraðrar sölu á framleiðsluvörum fyrirtækisins.

Fyrirtækið Foxconn er með langstærstan hluta af starfsemi sinni í Kína en starfsmenn fyrirtækisins sjá meðal annars um að setja saman iphone síma frá hugbúnaðar- og fjarskiptarisanum Apple, áður en þeir fara í sölu.

Gríðarlegt álag hefur verið á starfsmönnum fyrirtækisins, enda velgengni iphone símanna algjörlega án fordæma. Á einungis tveimur árum hafa selst yfir 150 milljónir iphone síma, og er búist við að nýi síminn frá Apple, iphone 5, muni slá öll fyrri met.

Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því í morgun að slagsmál og ólæti hefðu brotist út í verksmiðju Foxconn í Tævan, sem um tvö þúsund starfsmenn áttu aðild að. Í heild starfa tæplega áttatíu þúsund starfsmenn hjá fyrirtækinu í Tævan, og hefur þeim fjölgað hratt, í beinu samhengi við aukna eftirspurn eftir vörum Apple.

Yfir fimm þúsund lögregluþjónar róuðu mannskapinn niður og hófst framleiðsla stuttu síðar, eftir nokkurra klukkustunda stopp.

Foxconn hefur einnig séð um framleiðslu og samsetningu á ipad spjaldtölvunum vinsælu frá Apple.

Sjá má umfjöllun BBC hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×