Viðskipti erlent

BlackBerry í andarslitrunum

BBI skrifar
BlackBerry snjallsímarnir mega muna sinn fífil fegurri en fyrir um fjórum árum voru þeir heitasta græjan á markaði. Í dag eru þeir „á dánarbeðinu" að mati fjárfesta.

Síminn komu fyrst á markað árið 1999 en fjórum árum seinna hafði hann þróast svo rækilega að hann var orðinn að eins konar skrifstofu í lófastærð. Í kjölfarið var uppgangur framleiðandans mikill.

Í fyrra tók hins vegar að halla undan fæti en þá gáfu framleiðendur símans út afkomuviðvörun og tilkynntu að tekjur myndu dragast saman eftir mikinn uppgang síðustu ára. Starfsmönnum var sagt upp og hlutabréf hríðféllu.

Og enn syrtir í álinn því nú í júní var tilkynnt að tekjur fyrirtækisins hefðu dregist saman um helming á fyrsta ársfjórðungi og enn var starfsmönnum fækkað.

Sókudólgarnir fyrir þessum samdrætti eru auðfundnir, það eru keppinautarnir Apple og Google, en snjallsímar þeirra njóta mikilla vinsælda. Markaðshlutdeild Apple er 23% og hlutdeild Android frá Google er komin í 59% meðan BlackBerry hefur hrapað niður í 6,4%. Þar með sannast enn á ný skjótt skipast veður í lofti í tæknigeiranum.


Tengdar fréttir

Allt á niðurleið hjá RIM

Svo virðist sem að dagar Research in Motion, framleiðanda BlackBerry snjallsímanna, séu taldir. Síðasti ársfjórðungur var afar erfiður fyrirtækinu og er talið að um 5 þúsund starfsmönnum verði sagt upp á næstu dögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×