Viðskipti erlent

Microsoft gefur nýjasta snjallsíma sinn

Nokia Lumia 800 er knúinn af nýjasta stýrikerfi Microsoft.
Nokia Lumia 800 er knúinn af nýjasta stýrikerfi Microsoft. mynd/AFP
Samkvæmt Twitter-síðu Microsoft ætlar fyrirtækið að gefa nokkrum óánægðum notendum Android-stýrikerfisins nýjan Windows Phone snjalllsíma.

Það var stuðningsmaður Microsoft, Ben Rudolph, sem birti færsluna á Twitter-síðu sinni. Tilboðið virðist vera raunverulegt því Microsoft endurbirti skilaboðin stuttu seinna.

Talið er að Microsoft muni gefa stuðningsmönnum sínum snjallsímann Lumia 800.

Síðan tilboðið var opinberað hafa þúsundir Twitter-notenda birt áróður gegn Android á samskiptasíðunni. Þó hafa nokkrir lofað Android fyrir að hafa reitt starfsmenn Microsoft til reiði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×