Viðskipti erlent

Google í jólaskapi

mynd/Google
Starfsmenn tölvurisans Google eru sannarlega komnir í jólaskap. Með því að slá inn vinsælt textabrot í leitarvélina tekur að snjóa og leitarniðurstöðurnar verða þaktar hrími.

Hægt er að sjá jóladýrðina með því að slá inn „Let it snow" í leitargluggann.

Þó eru ekki allir sem halda upp á fæðingu frelsarans og svo virðist sem að forritarar Google séu vel meðvitaðir um það. Ef leitað er eftir trúarhátíð gyðinga, „Hanukkah", tekur leitarvélin á sig aðra mynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×