Fínn þverskurður Freyr Gígja Gunnarsson skrifar 14. nóvember 2010 16:00 Johann G in English er kærkomin fyrir yngri kynslóðina sem langar að hlusta á nýrri og eldri lög tónlistarmannsins án þess að þurfa leita dyrum og dyngjum að gömlum diskum.
Tónlist Tvískipt plata Jóhanns G. Jóhannssonar: Johann G in English *** Ýmsir syngja Jóhann G ** Það ætti að vera skylda fyrir alla þá sem hyggjast hasla sér völl í dægurlaga- og popptónlist að kynna sér verk og texta Jóhanns G. Jóhannssonar. Allavega ættu þeir að fara í masterclass hjá Jóhanni og heyra hvernig ofursmellurinn Don't Try to Fool Me varð til en lagið er ein besta dægurfluga sem flögrað hefur um á öldum ljósvakans. Fyrri safnplatan, Johann G in English, er kærkomin fyrir yngri kynslóðina sem langar að hlusta á nýrri og eldri lög tónlistarmannsins án þess að þurfa leita dyrum og dyngjum að gömlum diskum. Nýju lögin eru sem fyrr haganlega samin, útsetningarnar eru áreynslulausar, þetta er vandað heldrimannapopp þar sem ekki er reynt of mikið á hlustandann með tilraunastarfsemi. Eldri lögin hafa auðvitað sannað tilverurétt sinn og lifa góðu lífi enn í dag. Á seinni plötunni reyna nokkrir valinkunnir listamenn við lög Jóhanns og útkoman er náttúrlega misjöfn eins og gengur og gerist með slíka diska. Ung söngkona, Sigrún Vala, stendur sig vel, sem og djasssöngkonan Stine August. Fönksveitin Jagúar stendur fyrir sínu með lagið Money Can't Buy You Love og þá er einstaklega skemmtilegt að heyra í hinni fornfrægu hljómsveit Bo Halldorsson Band sem samkvæmt bókinni var stofnuð fyrir tónleikaferð Björgvins um Rússland 1982. Diskurinn verður hins vegar leiðigjarn til lengdar og Jóhann G. mætti skoða það í fúlustu alvöru að fá einhverjar af hinum nýju stjörnum, listamenn á borð við Hjálma, FM Belfast, Retro Stefson og Diktu, til að leika lögin sín. Niðurstaða: Johann G in English er tvískipt safn þar sem flutningur Jóhanns sjálfs stendur upp úr. Ábreiðudiskurinn er hins vegar ekki nógu spennandi eins og slíkum diskum hættir oft til að verða.
Mest lesið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Hyggjast halda breytta Söngvakeppni á næsta ári Lífið „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Einfalt og frísklegt útlit fyrir hlaupið Lífið Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Menning Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Fleiri fréttir Maður þurfti ekki að vera skyggn Melódrama, morð og hæfilega mikið bótox Sunna Gunnlaugs í skugga karlrembu á djasshátíð Alien Romulus: Ungmenna Alien May December: Seint koma sumir en koma þó Sjá meira