Menning

Engisprettur koma aftur á svið

Leiklist Þetta samtímaverk frá Serbíu var ein athyglisverðasta sýning á liðnum vetri og nú er það tekið upp á ný.Mynd/Þjóðleikhúsið – Eddi
Leiklist Þetta samtímaverk frá Serbíu var ein athyglisverðasta sýning á liðnum vetri og nú er það tekið upp á ný.Mynd/Þjóðleikhúsið – Eddi

Leikhúsunnendum sem misstu af Engisprettum á liðnu leikári gefst nú tækifæri til að sjá þessa rómuðu leiksýningu, en efnt verður til fimm aukasýninga á verkinu nú í haust. Sýningar hefjast í Þjóðleikhúsinu um helgina. Engisprettur voru frumsýndar seint á síðasta leikári. Þetta heillandi verk serbneska leikskáldsins Biljönu Srbljanovic vakti mikla athygli á liðnu leikári og gagnrýnendur lofuðu sýninguna í hástert.

Sýningin var tilnefnd til fimm Grímuverðlauna á liðnu vori. Þórhildur Þorleifsdóttir var tilnefnd fyrir leikstjórn og Guðrún S. Gísladóttir fyrir leik, en einnig hlutu útlitshönnuðir sýningarinnar allir tilnefningu; leikmyndahöfundurinn Vytautas Narbutas, búningahöfundurinn Filippía I. Elísdóttir og Lárus Björnsson ljósahönnuður.

Biljana Srbljanovic er eitt athyglisverðasta leikskáld samtímans, en í leikritum sínum nær hún á einstæðan hátt að sameina leiftrandi húmor, bráðskemmtilega persónusköpun, næma skoðun á manneskjunni og skarpa þjóðfélagsrýni. Í Engisprettum er fjallað um fjölskylduna, átök ólíkra kynslóða og viðleitni mannsins til að komast af, á snjallan og meinfyndinn hátt. Við kynnumst fjölda litríkra persóna og fylgjumst með því hvernig örlög þeirra tvinnast saman.

Einvala lið leikara túlkar persónur verksins, þau Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson, Eggert Þorleifsson, Friðrik Friðriksson, Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Gunnar Eyjólfsson, Hjalti Rögnvaldsson, Pálmi Gestsson, Sólveig Arnarsdóttir, Þóra Karítas Árnadóttir og Þórunn Lárusdóttir. Þýðandi verksins er Davíð Þór Jónsson.

Aðeins fimm sýningar verða á verkinu en nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.leikhusid.is.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×