Menning

Jurtateikningar Eggerts á bók

Teikningar Eggerts Péturssonar úr Íslenskri flóru koma nú á bók.
Mynd: Fréttablaðið/Anton Brink
Teikningar Eggerts Péturssonar úr Íslenskri flóru koma nú á bók. Mynd: Fréttablaðið/Anton Brink

Útgáfufyrirtækið Crymogea, sem er í eigu þeirra Snæbjörns Argrímssonar bókaútgefanda og Kristjáns B. Jónassonar, gefur út innan skamms eina dýrustu bók Íslandssögunnar - ef kálfskinnshandrit fyrri tíma eru ekki talin með: sú dýra bók er 550 síður í A3 stærð í öskju og hefur að geyma upprunalegar teikningar Eggerts Péturssonar sem birtust í Íslenskri flóru sem kom út árið 1983. Þetta eru 270 teikningar sem gerðar voru eftir plöntunum í raunstærð. Sú vinna hleypti Eggert inn á nýtt svið í myndlist.

Bókin verður aðeins gefin út í 500 tölusettum eintökum sem Eggert áritar allar. Bókin mun kosta 75.000 kr. og fæst ekki í bókaverslunum, heldur verður aðeins hægt að panta hana beint frá Crymogeu:kbj@crymogea.is. Pantanir eru þegar teknar að berast forlaginu.

Útgáfan á jurtateikningum Eggerts minnir á útgáfu Arnar og Örlygs á teikningum og vatnslitamyndum Benedikts Gröndal sem komu út á bók 1976 undir heitinu Dýraríkið sem var viðhafnarútgáfa í tilefni af 150 ára afmæli hans.

Í bókinni verða 271 teikning, en þær voru allar unnar á A3 blöð til að ná raunstærð flestra jurtanna.

Bókin var unnin í Kína og liggur í kassa, en ekki hylki eins og oft tíðkast. Hún er hönnuð af Snæfríði Þorsteins. Íslensk flóra var unnin fyrir áhuga Valdimars Jóhannssonar hjá Iðunni og kom út í óvenju stóru upplagi 1983. Hún var endurprentuð 1994.

pbb@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×