Viðskipti erlent

Átján ára tölvuþrjótur sýknaður

Nýsjálenskur unglingur sem játaði að hafa tekið þátt í alþjóðlegum tölvuglæp hefur verið sleppt eftir að ákæra á hendur á honum var látin niður falla. Lögreglan segir að hópurinn hafi „hakkað" sig inn á yfir milljón tölvur og tekið þaðan a.m.k 20,4 milljónir dollara af bankareikningum fólks.

Hinn 18 ára gamli Owen Thor Walker var gert að greiða 10 þúsund dollara vegna þeirra skemmda sem hann olli og einnig þurfti hann að afhenda tölvubúnað sinn.

Lögreglan segist áhugasöm um að nota hæfileika Walkers til þess að berjast gegn netglæpum. Þeir sem rannsökuðu málið segja forrit Walkers eitt það fullkomnasta sem þeir hafa séð.

Hann tók ekki peninga af reikningum fólks, en var greitt nærri 31 þúsund dollara fyrir forritið sem hann hannaði frá glæpahring sem þannig fengu notendanöfn, lykilorð og upplýsingar um kreditkort fólks.

Dómarinn, Judith Potter, lét ákæruna á hendur Walker niður falla, með vísan í svipað mál þar sem ráðist var á tölvukerfi í bandarískum háskóla. Dómarinn sagði að með sakfellingu gæti hún komið í veg fyrir bjartan frama Walkers í tölvubransanum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×