Viðskipti erlent

Sjálfeyðandi vafrakökur hjá Google

Höfuðstöðvar Google í Mountain View í Kaliforníu
Höfuðstöðvar Google í Mountain View í Kaliforníu MYND/GETTY
Vefrisinn Google hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að vafrakökur þeirra, litlar skrár sem að vistast á tölvu notanda þegar hann heimsækir vefsíðu, muni eyðast sjálfkrafa eftir tvö ár.

Vafrakökur fyrirtækisins eru notaðar til þess að geyma upplýsingar um stillingar notanda t.d. tungumálastillingar og til þess að fylgjast með notkun þeirra á leitarvélinni.

Flestar vefsíður og allar leitarvélar vista vafrakökur á tölvur notenda sinna.

Eins og er eru kökur Google stilltar á að eyðast árið 2038. En framvegis þegar notandi fer á vefsíðu frá Google , mun vistast kaka sem eyðist svo sjálfkrafa eftir tvö ár. Ef farið er aftur á síðuna mun kakan þó endurstillast fyrir næstu tvö ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×