Minning Guðjóns Samúelssonar 16. apríl 2007 08:00 Fræg mynd tekin við opnun Sundhallarinnar og gefin út á póstkorti og er líklega eftir Ólaf Magnússon ljósmyndara. Myndin sýnir mætavel hvílíkur listamaður Guðjón var.
Pétur Ármannsson arkitekt og einn reyndasti rannsóknarmaður okkar um þessar mundir í sögu íslenskrar húsagerðar heldur í kvöld fyrirlestur í hátíðarsal Háskóla Íslands en í dag, 16. apríl, eru 120 ár liðin frá fæðingu Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Af því tilefni mun Pétur H. Ármannsson arkitekt FAÍ halda fyrirlestur um fjölþætt framlag hans til byggingarlistar og skipulagsmála. Byggir Pétur þar á rannsóknum sínum sem hann var styrktur til að vinna fyrir fáum árum sem miða að því að ná saman skrá um verk Guðjóns en slík skrá var ekki til: á fimmta hundrað húsa voru byggð eftir teikningum hans og þá eru ótalin hús sem hann vann en skráð eru eða uppárituð af aðstoðarmönnum hans eins og Einari Erlendssyni. Verkaskránni hefur Pétur komið í gagnagrunn. Þá er eftir að kanna hús sem ekki risu og teikningar af þeim. Guðjón Samúelsson (1887-1950) var fyrstur Íslendinga til að ljúka háskólaprófi í byggingarlist árið 1919. Hann gegndi embætti Húsameistara ríkisins um 30 ára skeið frá 1920 til 1950. Á því tímabili teiknaði hann flest stórhýsi sem byggð voru á vegum ríkisins auk fjölda smærri bygginga. Guðjón Samúelsson húsameistari Með hugmyndum sínum og verkum hafði hann víðtæk áhrif á þróun íslenskrar húsagerðarlistar á tímabilinu frá 1915 og fram yfir 1930. Hann átti sæti í fyrstu skipulagsnefnd ríkisins frá stofnun hennar og á vegum hennar vann hann skipulagsuppdrætti af flestum þéttbýlisstöðum landsins á árunum 1921 til 1938. Þá var Guðjón Samúelsson upphafsmaður þess að nýta hrafntinnu, kvars og silfurberg til að húða yfirborð steinsteyptra útveggja í tengslum við byggingu Þjóðleikhússins árið 1933. Guðjón naut mikils atlætis af hálfu ráðamanna og á sínum tíma kom út rit með ljósmyndum af húsum hans sem hefur verið ófáanlegt um áratugi. Rannsóknir Péturs miða að því að koma verkaskránni á hreint sem er grundvöllur þess að hægt sé að vinna frekara yfirlit um þennan mikla listamann. Fyrirlesturinn er samstarfsverkefni Arkitektafélags Íslands og Háskóla Íslands. Hann fer fram í hátíðarsal Aðalbyggingar Háskóla Íslands við Suðurgötu mánudaginn 16. apríl næstkomandi og hefst kl. 20:00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Mest lesið Kristófer Helga í veikindaleyfi Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Stjörnulífið: Töru Sif meinað að fara í bað Lífið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Ebba Katrín og Oddur keyptu hús í miðbænum Lífið Frumsýning á Vísi: Helga Braga í kolsvartri kómedíu Bíó og sjónvarp Lítill bróðir mættur: „Fullkominn, stór og sterkur“ Lífið Segir Murphy gera lítið úr kynferðisofbeldi Bíó og sjónvarp „Eini metnaðurinn minn var að líða ekki illa“ Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira