Lífið

Ríku­legra heimili með ein­földum ráðum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Með nokkrum einföldum og hagkvæmum breytingum má láta heimilið líta út fyrir að vera mun dýrara en það er í raun og veru án þess að það þurfi að kosta formúu.
Með nokkrum einföldum og hagkvæmum breytingum má láta heimilið líta út fyrir að vera mun dýrara en það er í raun og veru án þess að það þurfi að kosta formúu.

Heimili þarf ekki að vera dýrt til að vera glæsilegt. Með réttu litavali, fallegum húsgögnum og góðu skipulagi getur hvaða heimili sem er litið út fyrir að vera vandað og ríkulegt.

Gott skipulag lykilatriði

Það er fátt sem gerir heimili glæsilegra en gott skipulag. Með fallegum hirslum og körfum og heldurðu hlutunum á sínum stað og skapar hreina og fágaða ásýnd.

Skjáskot/Pinterest

Hlutlaust litaþema

Hlutlausir og náttúrulegir litatónar gefa heimilinu tímalaust yfirbragð og láta rýmið virðast stærra og bjartara.

Skjáskot/Pinterest

Fáir en vandaðir hlutir

Betra er að fjárfesta í færri dýrum húsgögnum og innanstokksmunum, eins og sófa, borðstofuborði, hillum og ljósum. Með því að velja vörur með kostgæfni tryggirðu fágaðri stíl og glæsileika á heimilinu

Getty

Listaverk og myndir

Stór, flott listaverk geta umbreytt rýminu án þess að kosta mikið. Þú getur búið til þitt eigið eða fundið ódýr listaverk á netinu eða Góða hirðinum og sett í stílhreinan ramma.

Pinterest

Loftlistar og veggklæðningar

Listar og panelklæðningar á veggjum eða loftum gefa heimilinu klassískt og lúxuslegt yfirbragð. Þetta getur verið ódýr leið til að auka dýpt og gefa rýminu karakter. Það þarf þó að hafa byggingarstíl hússins í huga hvort það eigi við.

Skjáskot/Pinterest

Falleg lýsing

Vel staðsett og vönduð ljós geta lyft öll rýminu upp. Skiptu út venjulegum loftljósum fyrir stílhreina lampa, hengiljós eða ljóskastara með hlýlegri birtu. Fallegir borðlampar og kertaljós gera stemninguna í rýminu svo miklu notalegri.

Skjáskot/Pinterest

Púðar og mottur

Falleg efni eins og flauel, kasmír og hör á púðum, teppum, rúmfatnaði og gólfmottum gera rýmið fágaðara. Blandaðu saman mismunandi efnum til að auka dýpt, hlýleika og karakter rýmisins.

Pinterest

Láttu gardínur líta út fyrir að þær séu sérsniðnar

Með því að hengja gardínur frá lofti niður í gólf virðist rýmið stærra og glæsilegra. Veldu efni í hlutlausum lit fyrir fágaðri ásýnd, hvort sem það er í stofu, eldhúsi eða svefnherbergi. Mundu einnig að gufa gardínurnar áður en þær eru hengdar upp.

Skjáskot/Pinterest

Speglar stækka rýmið

Stórir speglar endurkasta ljósi og gera rýmið bjartara. Fallegur spegill umbreytir rýminu og lætur það virðast stærra en það er í raun og veru.

Skjáskot/Pinterest

Góður hýbílailmur

Glæsileg heimili ilma alltaf vel! Fjárfestu í góðum ilmkertum, ilmstöngum eða ilmolíulampa með ilmum eins og vanillu, sedrusviði eða sítrus til að skapa lúxus-stemningu.

Skjáskot/Pinterest

Blóm og plöntur

Fallegar plöntur og fersk blóm fegra ekki aðeins heimilið heldur hreinsa einnig loftið. Mikilvægt er að velja stílhreinan blómavasa sem passar við heildarmyndina.

Skjáskot/Pinterest





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.